Róbert Arnfinnsson - Ef ég væri ríkur
Útlit
Ef ég væri ríkur | |
---|---|
SG - 560 | |
Flytjandi | Róbert Arnfinnsson |
Gefin út | 1971 |
Stefna | Söngleikur |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Ef ég væri ríkur er 45-snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1971. Á henni flytur Róbert Arnfinnsson lög úr söngleikjunum Zorba undir stjórn Garðars Cortes og Fiðlaranum á þakinu undir stjórn Jóns Sigurðssonar. Bakraddir Eddukórinn. Teikningar gerði Halldór Pétursson.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Í fyrsta sinn - Lag - texti: John Kander - Þorsteinn Valdimarsson
- Ég er frjáls - Lag - texti: John Kander - Þorsteinn Valdimarsson
- Ef ég væri ríkur - Lag - texti: Jerry Bock - Egill Bjarnason
- Sól rís, sól sest - Lag - texti: Jerry Bock - Egill Bjarnason
Um lögin
[breyta | breyta frumkóða]Fyrstu tvö lögin eru úr grikkjanum „Zorba“ en tvö síðastnefndu úr þeim fræga söngleik „Fiðlarinn á þakinu“ sem varð metsölustykki í Þjóðleikhúsinu.