Pinus gerardiana
Pinus gerardiana | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Pinus gerardiana í Franklin Park Conservatory, Columbus, Ohio
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus gerardiana Wall. ex D. Don | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Pinus gerardiana (úrdú: چلغوزا پائن, á persnesku þýðir það „40 hnetur í köngli“ :چهل و غوزه) er fura ættuð frá norðvestur Himalajafjöllum í austur Afghanistan, Pakistan, og norðvestur Indlandi, og vex í 1800 til 3350 metra hæð. Hún vex oft með Cedrus deodara og Pinus wallichiana.
Hún verður 10-20(-25) m há, með yfirleitt breiða og opna krónu með löngum uppréttum greinum. Hún verður þó nettari í þéttum skógum. Börkurinn er sléttur og flagnar, og sést þá í ljós-grágræna bletti, svipað hinni skyldu næfurfuru (Pinus bungeana). Smágreinarnar eru sléttar og ólífugrænar. Barrnálarnar eru 3 saman, 6–10 sm langar, stífar, gljáandi grænar að utan, með blágrænum loftaugarásum að innan; nálaslíðrin falla af á fyrsta ári. Könglarnir eru 10–18 sm langir, 9–11 sm breiðir opnir. Furuhneturnar eru svartar, 17–23 mm langar og 5–7 mm breiðar, með þunnri skel og leifar af væng.
Tegundin er skráð í minnháttar hættu, eða ógnað. Skógarhögg og miki valda lítilli endurnýjun, sem gæti að lokum valdið útrýmingu tegundarinnar. The Himachal Pradesh State Forest Department hefur reynt endurnýjun tegundarinnar. Hinsvegar hefur lifun smáplantna verið mjög léleg.
Fræðiheitið er til heiðurs Kapteini Patrick Gerard, Breskum foringja í Indlandi. Tegundin var fyrst reynd í Englandi 1839, þar sem hún vex vel í hlýrri og þurrari svæðum sunnantil, en er sjaldan plantað.
Litningatalan er 2n = 24.[4]
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Hún er þekkt fyrir ætar hneturnar, sem eru ríkar af kollvetnum og próteinum. Fræin eru seld á svæðinu undir nafninu "chilgoza", "neja" (eintölu) eða "neje" (fleirtölu). Chilgoza er ein af mikilvægustu tekjulindum ættbálka sem búa í Kinnaur héraði í Himachal Pradesh, Indlandi. Fræið er mjög dýrt og gefur vel af sér fyrir fólkið í Kinnaur. Það er selt á PKR (Pakistani rupee) 2500-4500 INR (Indian rupee) 1800-2400 ($20–$53) á kíló.
-
Pinus gerardiana, óþroskaðir könglar í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, stofn í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, óþroskaðir kvenkönglar í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Fullvaxin Pinus gerardiana í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana óþroskaðir reklar í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, þroskaður kvenköngull í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Nærmynd af bol á Pinus gerardiana í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, nývöxtur í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, þroskaður köngull í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, blandaður skógur með Cedrus deodara og Pinus wallichiana í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, árssprotar í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, smápöntur í ræktun í Forest Department Nursery í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, smáplanta í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana með þroskuðum og óþroskuðum könglum í Baspa-dal, Indlandi.
-
Pinus gerardiana vex á þurrum klettahlíðum í Baspa Valley, India.
-
Pinus gerardiana, smáplöntur í uppeldi í Forest Department Nursery í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, stofn í Kalpa, Himachal Pradesh, Indlandi.
-
Pinus gerardiana, skógur í Baspa-dal, Indlandi.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Farjon, A. (2013). „Pinus gerardiana“. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T34189A2850009. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T34189A2850009.en. Sótt 13. desember 2017.
- ↑ World Checklist of Selected Plant Families. „Pinus gerardiana“. Sótt 11 apríl 2013.[óvirkur tengill]
- ↑ „Pinus gerardiana The PlantList“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14. júní 2021. Sótt 5. nóvember 2018.
- ↑ Tropicos. [1]
- Conifer Specialist Group (1998). „Pinus gerardiana“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 1998. Sótt 11. maí 2006.
Ytri tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Gymnosperm Database: Pinus gerardiana
- Photo of chilgoza pine cone
- Picture of chilgoza pine seed
- Chilgoza.net pine nuts info Geymt 26 apríl 2012 í Wayback Machine