Norðurárdalur (Skagafirði)
Norðurárdalur er dalur í austanverðum Skagafirði en mörkin milli Blönduhlíðar og Norðurárdals eru um Bóluá. Um dalinn liggur Þjóðvegur 1 upp á Öxnadalsheiði.
Dalurinn liggur fyrst til austsuðausturs en sveigir fljótlega til norðausturs. Norðurhlíð hans frá Bólugili kallast fyrst Silfrastaðafjall en síðan tekur Kotaheiði við og nær fram að Valagilsá. Þar tekur Silfrastaðaafrétt við. Hann tilheyrði áður Silfrastöðum en er nú eign hreppsins. Sunnan dalsins er Krókárgerðisfjall og síðan Borgargerðisfjall og fremst Virkishnjúkur. Vestan við Virkishnjúk gengur inn djúpur þverdalur og kallast norðurhlíð hans Egilsdalur en suðurhlíðin Tungudalur og er þá komið yfir á Kjálka.
Nokkurt undirlendi er í dalnum, þó minnst um miðbik hans, og þar fellur Norðurá um víðáttumiklar eyrar og hefur flæmst víða um þær í áranna rás. Í hana falla ýmsar þverár, þar á meðal Kotaá, Valagilsá, Króká og Egilsá. Sumar ánna gátu verið miklir farartálmar áður en þær voru brúaðar, einkum þó Valagilsá. Dalurinn er veðursæll og víða ágætlega gróinn og nú er hafin mikil skógrækt í Silfrastaðafjalli. Þar hafa á síðustu árum verið gróðursettar yfir milljón trjáplöntur.
Mikil skriðuföll urðu í Norðurárdal 6. júlí 1954 eftir stórrigningar sem gengið höfðu yfir sólarhringinn á undan og ollu þau miklum skemmdum, einkum á Fremri-Kotum, þar sem skriða staðnæmdist rétt ofan við íbúðarhúsið, en einnig á Ytri-Kotum, sem þá voru farin í eyði.
Lengst af voru 7 bæir í byggð í Norðurárdal en aðeins þrír eru eftir, Fremri-Kot, Egilsá og Silfrastaðir. Egilsá fór í eyði 2009 en var aftur komin í byggð 2010. Þar var lengi rekið sumardvalarheimili fyrir börn og síðar skólaheimili fyrir seinfæra og þroskahefta unglinga.
Bæir í Norðurárdal
[breyta | breyta frumkóða]Í byggð:
Eyðibýli:
- Borgargerði (fór í eyði 1974)
- Ytri-Kot (fóru í eyði 1952)
- Krókárgerði (fór í eyði 1898)
- Hálfdanartungur (fóru í eyði 1876)
Fornbýli:
- Ausugerði (fór í eyði um 1670)
- Skeljungsskáli
- Bessakot
- Ketilsstaðir (fóru í eyði 1690)
- Haukagil/Grund?
- Blómsturvellir
- Vík
- Henglastaðir
- Gerði
- Smáaland
- Bygggerði
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Hjalti Pálsson (ritstj.): Byggðasaga Skagafjarðar IV. bindi. Akrahreppur. Sögufélag Skagfirðinga, 2007. ISBN 978-9979-861-15-7}