Neil Armstrong
Neil Armstrong | |
Neil Armstrong fyrir Apollo 11 ferðina. | |
Fæddur | 5. ágúst 1930 Wapakoneta, Ohio, Bandaríkjunum |
---|---|
Látin(n) | 25. ágúst 2012 (82 ára) |
Tími í geimnum | 8 dagar, 14 klukkustundir, 12 mínútur og 31 sekúnda |
Verkefni | Gemini 8 og Apollo 11 |
Neil Armstrong (5. ágúst 1930 – 25. ágúst 2012) var bandarískur geimfari og flugmaður. Hann er þekktastur fyrir að vera fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Það gerði hann í annarri og síðustu geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Buzz Aldrin tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan.
Æfingar á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Aðalgrein: Æfingar tunglfara í Þingeyjarsýslum
Árið 1967 kom Neil Armstrong til Íslands til þjálfunar í vettvangsjarðfræði í Þingeyjarsýslum undir leiðsögn jarðfræðinganna Sigurðar Þórarinssonar og Guðmundar Sigvaldasonar. Armstrong nýtti ferðina einnig til að veiða í Laxá í Aðaldal ásamt félaga sínum Bill Anders. Myndir og munir frá æfingum geimfaranna eru til sýnis í Könnunarsögusafninu á Húsavík.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Ítarlegar upplýsingar um Apollo 11 á Stjörnufræðivefnum Geymt 13 febrúar 2010 í Wayback Machine
- Æfingar tunglfaranna á Íslandi 1965 og 1967 Geymt 18 janúar 2018 í Wayback Machine