Nintendo DS
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Nintendo DS | |
---|---|
Framleiðandi | Nintendo |
Tegund | Handhæg leikjatölva |
Kynslóð | Sjöunda kynslóð |
Gefin út | 21. nóvember, 2004 21. nóvember, 2004 2. desember, 2004 11. mars, 2005 24. febrúar, 2005 23. júlí, 2005 |
Örgjörvi | 67 MHz ARM94E-S (ARM) og 33 MHz ARM7TDMI coprocessor |
Skjákort | {{{GPU}}} |
Miðlar | GBA leikjahylki DS kort |
Netkort | Nintendo Wi-Fi |
Sölutölur | 16.2 million |
Mest seldi leikur | Nintendogs (allar útgáfur) |
Arftaki | Nintendo DS Lite |
Nintendo DS (oft skammstafað DS eða NDS), er leikjatölva frá Nintendo í lófastærð sem hefur tvo skjái. Hún var gefin út árið 2004. Nafnið "DS" stendur fyrir enska heitið "Dual-Screen" ("tveggja-skjáa") eða "Developers' System" ("þróunarkerfi"). Hönnunin á DS líkist skel en hún getur opnast og lokast lárétt (sbr. Game Boy Advanced SP og Game & Watch). Árið 2006 var DS endurhönnuð, og gefin út undir nafninu DS Lite.
Virkni
[breyta | breyta frumkóða]Aðalstarfsemi DS er að spila tölvuleiki; enda er margmiðlunar spilun ekki byggð inn í tölvuna. Nintendo vonar að ný stjórnkerfi og fídusar í DS muni hvetja hönnuði og forritara til að hanna nýjar gerðir af leikjum sem og að höfða til nýs markhóps sem hafi ekki áður spilað tölvuleiki útaf því hve flóknir þeir líta út.
Helsti munur á DS og forverum/keppinautum hennar er augljóslega að vélin hefur tvo skjái. Vélin hefur einnig hljóðnema og neðri skjár hennar er snertinæmur. DS styður einnig þráðlausa nettengingu með 802,11b staðli, og heimilar það fólki að tengjast við aðra DS notendur á stuttu færi (eða frá 9 -30 metrum eftir aðstæðum) eða í gegnum Nintendo Wi-Fi þjónustuna með því að tengjast Wi-Fi heitum reitum.