Munir og minjar
Útlit
Munir og minjar var íslenskur sjónvarpsþáttur sem fjallaði um íslenska menningarsögu, einkum út frá munum í Þjóðminjasafninu, varðveittum húsum og fornleifarannsóknum. Fyrsti stjórnandi þáttarins var Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður. Síðar sáu meðal annars Elsa E. Guðjónsson og Þór Magnússon um þættina. Þættirnir voru um það bil mánaðarlega á dagskrá sjónvarpsins á föstudögum nokkuð reglulega frá 1967 til 1970 en stopulli eftir það. Þeir voru hálftíma langir.
Þættir
[breyta | breyta frumkóða]Þáttur[1]: | Stjórnandi | Dagsetning | Ár |
---|---|---|---|
„Skurðlist Bólu-Hjálmars“ | Kristján Eldjárn | 6. janúar | 1967 |
„Fangamark Þórðar Hreðu“ | Kristján Eldjárn / Hörður Ágústsson | 3. febrúar | 1967 |
„Grófu rætur og muru“ | Kristján Eldjárn | 3. mars | 1967 |
„Kirkjan að Meira-Núpi“ | Kristján Eldjárn | 7. apríl | 1967 |
„Fornleifafundur í Patreksfirði“ | Þór Magnússon | 5. maí | 1967 |
„Það sem jörðin geymir“ | Kristján Eldjárn | 22. september | 1967 |
„Ólafur kom ungur, ör og fríður“ | Kristján Eldjárn | 19. október | 1967 |
„Bekkina gerði gullhlaðsey“ | Elsa E. Guðjónsson | 17. nóvember | 1967 |
„María meyjan skæra“ | Kristján Eldjárn | 22. október | 1967 |
„Beztar ástir greiðir friðar engill“ | Þór Magnússon | 31. desember | 1967 |
„Segðu mér spákona“ | Þórður Tómasson | 19. janúar | 1968 |
„Þá er Gaukur bjó á Stöng“ | Hörður Ágústsson | 16. febrúar | 1968 |
„Vertu nú minni hvílu hjá“ | Þór Magnússon | 26. september | 1968 |
„Með silfurbjarta nál“ | Elsa E. Guðjónsson | 22. október | 1968 |
„Grænlandssýningin“ | Kristján Eldjárn / Þór Magnússon | 19. nóvember | 1968 |
„Húsakostur á íslenskum höfuðbólum á miðöldum“ | Hörður Ágústsson | 24. janúar | 1969 |
„Með gullband um sig miðja“ | Elsa E. Guðjónsson | 25. febrúar | 1969 |
„Hafði gull á hvítu trýni“ | Þór Magnússon | 25. mars | 1969 |
„Æskuvinir“ | Þórður Tómasson | 22. apríl | 1969 |
„Vernd og eyðilegging“ | Þór Magnússon | 27. maí | 1969 |
„Gripirnir frá Jóni Vídalín“ | Þór Magnússon | 14. nóvember | 1969 |
„Þegar ljósmyndavélin kom“ | Þór Magnússon | 12. desember | 1969 |
„Askar og spænir“ | Þór Magnússon | 30. janúar | 1970 |
„Byggðasafnið í Görðum“ | Ólafur Ragnarsson | 25. mars | 1970 |
„Silfursmíðar Íslendinga“ | Þór Magnússon | 23. apríl | 1970 |
„Bertel Thorvaldsen“ | Þór Magnússon | 12. nóvember | 1970 |
„Gott er að drekka hið góða öl“ | Þór Magnússon | 12. febrúar | 1971 |
„Fornminjar í Reykjavík“ | Þorleifur Einarsson | 19. mars | 1971 |
„Gamlar kvikmyndir“ | Árni Björnsson | 26. október | 1971 |
?? | Þór Magnússon | 19. febrúar | 1972 |
„Kvöldstund í Byggðasafni Vestfjarða á Ísafirði“ | Ólafur Ragnarsson | 16. maí | 1972 |
„Hesti er bezt að hleypa á skeið“ | Þór Magnússon | 29. nóvember | 1972 |
„Upsakirkju til skrauts“ | Þór Magnússon | 26. mars | 1973 |
„Minjasafnið í Skógum“ | Þórður Tómasson | 9. nóvember | 1976 |
„Byggðasafnið í Skógum II“ | Ómar Ragnarsson | 19. desember | 1976 |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Samkvæmt dagskrársíðum Morgunblaðsins á http://www.timarit.is .