Vesúvíus
40°49′00″N 14°26′00″A / 40.81667°N 14.43333°A
Vesúvíus (ítalska Monte Vesuvio, latína Mons Vesuvius) er eldfjall við Napólíflóa á Ítalíu. Vesúvíus er um það bil 9 km austan við Napólí og nálægt ströndinni. Vesúvíus er eina eldfjallið á meginlandi Evrópu sem hefur gosið síðustu hundrað ár en síðasta umtalsverða eldgos þar var árið 1944. Tvö önnur virk eldfjöll eru á Ítalíu, Etna og Strombólí, en þau eru bæði á eyjum.
Vesúvíus er þekktast fyrir eldgosið árið 79 e.Kr. sem eyðilagði rómversku borgarnir Pompeii og Herculaneum. Borgirnar voru aldrei byggðar aftur upp en eftirlifandi íbúar og ræningjar fjarlægðu mikið af verðmætum þaðan eftir gosið. Staðsetning borganna gleymdist allt fram á 18. öld þegar þær voru enduruppgötvaðar fyrir tilviljun.