Meråker (sveitarfélag)
Útlit
Meråker er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 2.399 íbúar (2022).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er þéttbýlið Midtbygda, sem er eina þéttbýlið í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið Meråker á landamæri að sveitarfélögunum Verdal í norðri, Stjørdal í vestri og Selbu og Tydal í suðri. Í austri liggur sveitarfélagið að Svíþjóð.