Stjørdal (sveitarfélag)
Útlit
Stjørdal er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 24.287 íbúar (2022).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er borgin Stjørdalshalsen. Til sveitarfélagsins teljast einnig þéttbýlin Hell og Skatval.
Sveitarfélagið á landamæri að sveitarfélögunum Meråker í austri, Selbu í suðri, Malvik í vestri og Levanger í norðri.