Ertuygla
Ceramica pisi | ||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||
Ceramica pisi Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||||
|
Ertuygla[1] (fræðiheiti Melanchra pisi eða Ceramica pisi) er mölfluga sem lifir á jurtum af ertublómaætt. Ertuygla hefur sést í auknum mæli á Íslandi frá aldamótum. Hún er algeng um sunnanvert Ísland. Fullorðin fiðrildi eru á ferli á vorin og fyrri hluta sumars og verpa þá og lirfur klekjast úr eggjum. Í ágúst ná lirfurnar fullum vexti, hverfa niður í gróðursvörðinn og púpa sig. Fullþroska fiðrildi skríða úr púpunum að vetri loknum. Vænghafið er 32–37 mm.
Lirfan hélt sig hérlendis í fyrstu einkum við lúpínu[2] en hefur síðari ár orðið skaðvaldur í skógrækt einkum hvað varðar víði, greni og ösp. Lirfum er eytt með breiðvirku eitri eins og Permasect sem drepur skordýr eða sérvirkum bakteríum sem hafa eingöngu áhrif á fiðrildalirfur eins og Bt (Bacillus thuriengensis).
Ertuygla er skyld grasyglu.
-
Grænt afbrigði af lirfu ertuyglu
-
Marglit lirfa
-
Brún lirfa
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Ertuygla Geymt 30 júlí 2013 í Wayback Machine
- Broom Moth
- Lepidoptera of Belgium Geymt 7 desember 2008 í Wayback Machine
- Broom Moth at UKmoths
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ertuygla Náttúrufræðistofnun Íslands
- ↑ Skógræktin. „Ertuygla“. Skógræktin. Sótt 11. september 2020.