Mannakorn
Mannakorn er íslensk popphljómsveit, sem gaf út sína fyrstu plötu 1975. Orðið Mannakorn kemur úr biblíunni og þýðir brauð af himnum eða orð guðs.
Kjölfesta hljómsveitarinnar í fyrstu voru: Magnús Eiríksson, aðal laga- og textahöfundur, sem lék á ýmsar gerðir gítara og söng. Pálmi Gunnarsson, bassaleikari og aðalsöngvari, Baldur Már Arngrímsson, gítar, slagverk og söngur og Björn Björnsson, trommur og söngur. Auk þeirra var Vilhjálmur Vilhjálmsson gestasöngvari á plötunni ásamt Úlfari Sigmarssyni á píanó. Á fyrstu plötunni voru 12 lög og textar, flest/ir eftir Magnús nema Lilla Jóns sem er eftir Ray Sharp og Jón Sigurðsson og svo texti við Hudson Bay eftir Stein Steinarr.
Önnur platan Gegnum tíðina kom út 1977 og geymdi tíu lög og texta eftir Magnús nema textann við Ræfilskvæði sem er eftir Stein Steinarr. Platan þótti marka tímamót í mörgum skilningi en með henni sannaði Magnús sig sem einn fremsta laga og textahöfund landsins. Platan þótti þjóðleg þótt hún væri poppuð og grípandi og umslagið vakti eftirtekt. Platan geymir meðal annars lagið Braggablús.
Mannakorn hefur gefið út fleiri plötur en þar má m.a. nefna Brottför kl. 8 (1979) og seinni plötur eins og Í ljúfum leik, (1985), Mannakorn 5 (1985) og Mannakorn 6 (1990). Þær voru skipaðar ólíkum tónlistarmönnum en Magnús og Pálmi mynduðu kjölfestuna.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Magnús
- (f. 1945) Átti sterka hefð í blúsnum en hann spilaði nokkuð reglulega ásamt hljómsveit sinni Blues Company á blúskvöldum sem haldin voru á skemmtistaðnum Klúbbnum kringum 1970. Einnig lék hann um skeið með hljómsveitunum Skuggasveinum, Pónik og Lísu.
- Pálmi
- (f. 1950) Pálmi hefur komið víða við í popptónlistenda sem söngvari og bassaleikari. Meðal hljómsveita sem hann hefur spilað með má nefna: Blues Company, Foxes, Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Islandicu, Lísu, Tríó Guðmundar Ingólfssonar, Celsíus, Póker, Brunaliðið, Friðryk og Park Project.
- Baldur Már
- (f. 1943. Hann lék meðal annars með hljómsveitinni Lúdó og var einnig einn af félögunum í Lísu.
- Björn
- Sonur hins fræga trombónleikara Björns R. Einarssonar hafði áður lamið húðirnar hjá Pónik, Lúdó og Lísu.
Plötur
[breyta | breyta frumkóða]- Mannakorn (1975)
- Í gegnum tíðina (1977)
- Brottför kl. 8 (1979)
- Í ljúfum leik]] (1985)
- Mannakorn 5 (1985)
- Mannakorn 6 (1990)
- Betra en best (2004)
- Von (2009)
- Í blómabrekkunni (2012)
- Í núinu (2014)
Tónleikaplötur
[breyta | breyta frumkóða]- 25 ára afmælistónleikar í Salnum (2001)
- Ekki dauðir enn (2006)