Mál (stærðfræði)
Mál í stærðfræði er vörpun frá mengi hlutmengja í gefnu mengi yfir í rauntölurnar. Mál á mengi getur verið túlkað sem stærð, rúmmál eða líkindi þess. Hugtakið mál hefur þróast útfrá vilja til þess að geta heildað föll yfir almenn mengi í staðin fyrir bil eins og venjulega er gert, og er mjög mikilvægt í stærðfræðigreiningu og líkindafræði.
Málfræði
[breyta | breyta frumkóða]Málfræði er grein innan raunfallagreiningar sem fæst við það að rannsaka sigma algebrur, mál, mælanleg föll og heildi. Málfræði er mikilvæg í líkindafræði og tölfræði.
Formleg Skilgreining
[breyta | breyta frumkóða]Formlega er mál μ vörpun skilgreind á σ-algebru Σ yfir mengi X sem tekur gildi á útvíkkaða rauntalnaásnum eða útvíkkaða bilinu [0, ∞] þannig að eftirfarandi eiginleikar eru uppfylltir:
- Tómamengið hefur mál núll:
- Teljanlegt sammengi er stak: Ef ... er teljanleg runa af mengjum í Σ sem eru sundurlæg tvö og tvö, þá er mál sammengis þeirra jafnt summu af máli hvers mengis fyrir sig:
Þrenndin (X,Σ,μ) er þá kölluð málrúm, og stökin í Σ eru mælanleg mengi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „Measure (mathematics)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. nóvember 2006.
- Jón Ragnar Stefánsson (2005). Mál- og tegurfræði fyrirlestrar. Háskóli Íslands.