Fara í innihald

Laugardalsvöllur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Laugardalsvöllur

StaðsetningReykjavík, Ísland
Hnit 64°08′36.8″N 21°52′44.3″V / 64.143556°N 21.878972°V / 64.143556; -21.878972
Byggður1958
Opnaður1959
Stækkaður1965-1970 - Vesturstúkan stækkuð og yfirbyggð
1997 (seinni stúka)
2007 (eldri stúkan)
2024-2025 (hybridgras og færsla vallar, stækkun)
EigandiKSÍ
YfirborðGras (hybrid frá júní. 2025)
ArkitektGísli Halldórsson
Notendur
Íslenska knattspyrnulandsliðið
Hámarksfjöldi
Sæti9.522
Stæði10.000+
Stærð
105 x 68 metrar

Laugardalsvöllur er knattspyrnuþjóðarleikvangur Íslands og stærsti leikvangur Íslands. Hann tekur rúmlega 9.500 áhorfendur í sæti. Völlurinn er aðallega notaður við iðkun knattspyrnu en einnig hefur verið aðstaða fyrir frjálsar íþróttir á honum. Þá hafa stórtónleikar verið haldnir á honum (t.d. Elton John, Guns N' Roses og Ed Sheeran). Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu og íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu. Knattspyrnufélagið Fram var með afnot af vellinum um skeið.

Fyrsti leikur á vellinum var Ísland á móti Noregi árið 1957. [1] Völlurinn opnaði þó ekki formlega fyrr en 1959. Stúkan var endurgerð milli 1965 til 1970. Árið 1992 komu flóðljós á völlinn og árið 1997 kom ný stúka austan megin sem tók 3.500 manns. Gamla stúkan vestan megin var svo stækkuð árið 2007.

Metaðsókn á völlinn var árið 2004 þegar Ísland tók á móti Ítalíu en þá voru samtals 20.204 áhorfendur. Ísland sigraði í leiknum með 2 mörkum gegn engu.[2]

Stækkun 2024-2025

[breyta | breyta frumkóða]

Framkvæmdir á vellinum hófust 2024 og stóðu til sumars 2025. Þá var lagt hybridgras á völlinn og hitakerfi undir hann. [3] [4] Völlurinn var færður í vestur í átt að gömlu, stærri stúkunni og var hlaupabrautin fjarlægð. Hugmyndir eru uppi að reisa nýja stúku austan megin og hringinn kringum völlinn. [5]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Sigur Norðmanna verðskuldaður. Morgunblaðið, 9. júlí 1957
  2. ↑ soccernet.espn.go.com/report?id=157667&cc=5739 Geymt 28 janúar 2005 í Wayback Machine, „Iceland v Italy Report“, skoðað 15. maí 2007.
  3. ↑ Hybrid gras á Laugardalsvöll Vísir, sótt 2/9 2024
  4. ↑ Formaður KSÍ: „Loksins komið af stað og verkið hafið“ Rúv, sótt 17. október 2024
  5. ↑ Færa grasið nær stúkunni Rúv, sótt 17. október 2024
  Þessi íþróttagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.