Klofningsfjall

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Klofningur

Klofningsfjall er um 500 metra fjall í Dalasýslu. Það gengur á milli Fellsstrandar og Skarðsstrandar og skiptir þeim upp. Vestan á fjallinu er hvöss öxl og heitir hún Klofningshyrna. Fjallið er kennt við klettarana sem liggur fram af enda þess og heitir Klofningur og er þar útsýnisskífa þar sem helstu kennileiti eru merkt. Í framhaldi af Klofningi er Langeyjarnes og síðan Efri-Langey, Fremri-Langey, Arney og fleiri eyjar.

Vinsæl gönguleið liggur upp á Klofningsfjall og er oftast gengið frá bænum Stakkabergi. Af fjallinu er mjög fallegt útsýni yfir Breiðafjörð og Breiðafjarðareyjar og til Snæfellsness og Barðastrandar.

Nálægir staðir[breyta | breyta frumkóða]

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

  • https://icelandroadguide.com/items/klofningsfjall/
  • Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, H-K. Örn og Örlygur.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.