Jennifer Lopez
Jennifer Lopez | |
---|---|
Fædd | Jennifer Lynn Lopez 24. júlí 1969 |
Önnur nöfn | J.Lo |
Störf |
|
Ár virk | 1986–í dag |
Maki | Ben Affleck (g. 2022) |
Börn | 2 |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri | Rödd |
Útgefandi | |
Vefsíða | jenniferlopez |
Undirskrift | |
Jennifer Lynn Lopez (f. 24. júlí 1969) er bandarísk leik- og söngkona, plötuframleiðandi, dansari, fatahönnuður og sjónvarpsþáttaframleiðandi. Síðan 1999 hefur Lopez gefið út níu plötur, m.a. tvær plötur sem hafa verið á toppi Billboard 200 listans og fjórar smáskífur í 1. sæti á Billboard Hot 100 listanum. Hún vann Bandarísku tónlistarverðlaunin árið 2003 fyrir Uppáhalds Popp/Rokk söngkonuna og Bandarísku tónlistarverðlaunin árið 2007 sem uppáhalds söngkonan af Suður-Amerískum ættum. Hún hefur einnig leikið í mörgum kvikmyndum og unnið ýmis verðlaun.
Fjölmiðlar hafa mikið fylgst með einkalífi hennar. Hún hefur átt í frægum samböndum við Ojani Noa, Cris Judd, Sean Combs, Ben Affleck og Marc Anthony. Fyrstu börn hennar, tvíburarnir Max og Emme, fæddust þann 22. febrúar 2008.
Æska
[breyta | breyta frumkóða]Jennifer Lopez er fædd og uppalin í Suður-Bronx, New York, og eru foreldrar hennar frá Púertó Ríkó og heita Gudalupe Rodríguez sem er leikskólakennari og David Lopez sem er tölvusérfræðingur. Hún á tvær systur, Lyndu og Leslie. Jennifer eyddi allri skólagöngu sinni í kaþólskum skólum, og útskrifaðist úr stúlknaskólanum Preston High í Bronx. Hún borgaði sjálf söng- og danskennslu fyrir sig þegar hún var 19 ára. Eftir að hafa gengið í Baruch háskólann í hálft ár skipti hún tíma sínum á milli þess að vinna á lögfræðistofu, danstíma og þess að dansa á Manthattan á næturklúbbum. Hún fékk lítið hlutverk í kvikmyndinni My Little Girl árið 1987. Eftir marga mánuði af áheyrnarprufum fyrir danshlutverk, var hún valin sem dansari fyrir nokkur rapp-tónlistarmyndbönd í þætti af Yo! sem var sýndur á MTV árið 1990, hún var einnig bakdansari fyrir Kids on the Block. Eftir að hafa verið hafnað tvisvar, fékk hún fyrsta alvöru hlutverkið sitt sem Fly Girldansari í grínþættinum In Living Color árið 1990. Stuttu eftir það var hún dansari hjá Janet Jackson og kom fram í myndbandinu við That's the Way Love Goes árið 1993.
Kvikmyndir og sjónvarp
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta sjónvarpshlutverk hennar sem leikkona var í FOX þáttaröðinni South Central og kom til vegna þess að framleiðandi þáttanna var giftur einni leikkonunni í Fly Girl og hann tók eftir Jennifer þegar FOX sýndi sérstakan þátt um þær. Lopez lék einnig í Second Chances og Hotel Malibu. Hún lék síðan í sjónvarpsmyndinni Nurses on the Line: The Crash of Flight 7. Árið 1996 sigraði hún Ashley Judd og Lauren Holly í slagnum um aukahlutverk í kvikmynd Francis Ford Coppola, Jack með Robin Williams í aðalhlutverki. Hún lék síðan á móti Jack Nicholson í hrollvekjunni Blood and Wine.
Fyrsta stóra hlutverkið kom árið 1997, þegar hún var valin í titilhlutverk kvikmyndarinnar Selena sem fjallar samnefnda poppsöngkonuna. Þrátt fyrir að hafa áður unnið með Nava í Mi Familia, var Lopez látin fara í áheyrnarprufur áður en hún fékk hlutverkið. Hún fékk mikla athygli og lof fyrir frammistöðu sína og hlaut Golden Globe verðlaunin sem besta leikkonu í tónlistar- eða gamanmynd. Seinna þetta sama ár lék hún í tveimur stórum kvikmyndum. Hún lék í Anaconda með Ice Cube og John Voight og lék hlutverk Terri Flores, leikstjóra sem er að taka upp heimildarmynd á leið sinni í gegnum Amazon-skóginn. Þrátt fyrir að fá gríðarlega mikla athygli og hala miklu inn, fékk hún ekki góða dóma. Síðan lék hún aðalhlutverk í kvikmyndinni U-Turn sem er byggð á bókinni Stray Dogs og lék þá á móti Sean Penn og Billy Bob Thornton.
Útgefið efni
[breyta | breyta frumkóða]Hljómplötur
[breyta | breyta frumkóða]- On the 6 (1999)
- J.Lo (2001)
- This Is Me... Then (2002)
- Rebirth (2005)
- Como Ama una Mujer (2007)
- Brave (2007)
- Love? (2011)
- A.K.A. (2014)
- This Is Me... Now (2024)
Kvikmyndir
[breyta | breyta frumkóða]- 1986 : My Little Girl
- 1990 : Lambada
- 1990 : In Living Color
- 1993 : Nurses on the Line: The Crash of Flight 7
- 1993 : Second Chances
- 1994 : South Central
- 1994 : Hotel Malibu
- 1995 : My Family
- 1995 : Money Train
- 1996 : Jack
- 1996 : Blood and Wine
- 1997 : Selena
- 1997 : Anaconda
- 1997 : U Turn
- 1998 : Out of Sight
- 1998 : Antz
- 2000 : The Cell
- 2001 : The Wedding Planner
- 2001 : Angel Eyes
- 2002 : Enough
- 2002 : Maid in Manhattan
- 2003 : Gigli
- 2003 : Selena: Greatest Hits
- 2004 : Jersey Girl
- 2004 : Shall We Dance
- 2005 : Monster-in-Law
- 2005 : An Unfinished Life
- 2006 : Bordertown
- 2008 : The Back-up Plan
- 2012 : What to Expext When You're Expecting
- 2012 : Ice Age:Continental Drift
- 2013 : Parker