Jarðskjálfti
Jarðskjálfti er titringur eða hristingur í skorpu jarðar. Upptök jarðskjálfta verða oftast á flekamótum eða flekaskilum. Við jarðskjálfta losnar spenna sem myndast vegna núnings milli jarðskorpufleka. Þessi spenna getur hafa verið að safnast upp í hundruð ára en losnar á einu augnabliki með fyrrgreindum afleiðingum.
Einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Á jörðu verða jarðskjálftar á hverjum degi, þó svo að við tökum ekkert eftir þeim. Þetta er mjög eðlilegt vegna jarðskorpuhreyfinga, einkum á mótum tveggja jarðskorpufleka. Meirihluti allra jarðskjálfta eru litlir og valda engu tjóni en aðrir eru stærri og í kjölfar þeirra geta fylgt margir smærri skjálftar, svokallaðir eftirskjálftar. Jarðskjálftum fylgir hinn kunnuglegi titringur auk þess sem sprungur geta komið í jörðina og mannvirki geta skemmst eða jafnvel hrunið, flóðbylgjur geta farið af stað og skriðuföll bæði í sjó og á landi geta farið af stað.
Flestum stórum skjálftum fylgja fyrirskjálftar og eftirskjálftar. Þetta er vegna spennunar sem byggist upp í skorpuflekanum og sú spenna hefur einmitt tilhneigingu til að hrinda af stað skjálftahrinu sem byggist upp af fyrir- og eftirskjálftum. Þar sem allir flekar tengjast saman utan um jörðina geta jarðskjálftar á einum stað hrundið af stað keðjuverkun sem hægt er að sjá um allan hnöttinn.
Manngerðir skjálftar
[breyta | breyta frumkóða]Jarðskjálftar geta orðið af manna völdum vegna sprenginga eða vökvabrots.
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Nokkrir af jarðskjálftum 21. aldarinnar
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Almennir tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Jarðskjálftar á Íslandi síðustu 48 klukkustundir; af vef Veðurstofu Íslands
- Allt Ísland - jarðskjálftar síðustu 48 klst. (jarðskjálftakort); af vef Veðurstofu Íslands
Vísindavefurinn
[breyta | breyta frumkóða]- „Hvar varð öflugasti jarðskjálfti sem mælst hefur á jörðinni?“. Vísindavefurinn.
- „Hvers vegna heyrist í jarðskjálfta áður en hann kemur?“. Vísindavefurinn.
- „Geta dýr skynjað jarðskjálfta áður en þeir verða?“. Vísindavefurinn.
- „Væri hægt að senda viðvörun um jarðskjálfta meðan bylgjurnar eru á leiðinni?“. Vísindavefurinn.
Greinar úr blöðum
[breyta | breyta frumkóða]- Jarðskjálftasvæðin; 1. grein í Morgunblaðinu 1998
- Stóru skjálftarnir; 2. grein í Morgunblaðinu 1998
- Dropinn sem holar steininn; 3. grein í Morgunblaðinu 1998
- Mestu jarðskjálftar á fyrri helmingi þessarar aldar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1956
- Jarðskjálftar og húsbyggingar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1961
- Axarfjarðarskjálftinn með snörpustu kippum er hér koma; grein í Morgunblaðinu 1976
- Að búa á jarðskjálftasvæði; grein í Morgunblaðinu 1971
- Hægt er að spá fyrir um jarðskjálfta - en er mjög kostnaðarsamt; grein í Morgunblaðinu 1976
- Gott eigum við íslendingar, en... (pistlar um jarðskjálfta); grein í Morgunblaðinu 1940
- Jarðskjálftar og Kröfluvirkjun; grein í Morgunblaðinu 1976