Rafspenna
Rafspenna, oftast aðeins spenna, er styrkur rafmagns. Í rafmagnsfræðum er oftast átt við mismun á styrk mættisins milli tveggja punkta í rafsviði, þar sem annar punkturinn er jörð, sem samkvæmt skilgreiningu hefur rafmætti núll. SI-mælieining er volt, táknuð með V.
Stærðfræðileg skilgreining rafspennu, U: Styrkur rafmættis, eða sú vinna, sem þarf til að hliðra einingarrafhleðslu í rafsviði, frá punkti a til punkts b, má setja fram með ferilheildinu
Jafnspenna er föst í tíma, en riðspenna sveiflast reglulega milli tveggja útgilda.
Jafnspennan V, milli tveggja punkta í rafrás er hlutfall afls W og rafstraums I, sem um hana fer:
Samband straums og spennu
[breyta | breyta frumkóða]Lögmál Ohms gefur samband rafspennu og -straums í rafrás með því að skilgreina rafviðnám.
Spennulögmál
[breyta | breyta frumkóða]Spennulögmálið segir að summa allra spennugjafa rafrásar sé jöfn summu spennulfallanna.
Jöfnur Maxwells
[breyta | breyta frumkóða]Jöfnur Maxwells gefa samband rafsegulsviðs og rafspennu.
Háspenna
[breyta | breyta frumkóða]Háspenna kallast rafspenna sem er nægjanlega há til geta valdið skammhlaupi í lofti og er hættuleg mönnum og dýrum.
Rafspenna á heimilum
[breyta | breyta frumkóða]Íslensk heimili nota 230 volta riðspennu, með sveiflutíðnina 50 rið, sem strangt tekið telst ekki háspenna, en getur samt verið banvæn. Um raflagnir á heimilum og í fyrirtækjum gilda lög, sem ætlað er að koma í veg fyrir slys af völdum rafmagns.