Gro Harlem Brundtland
Gro Harlem Brundtland (fædd 20. apríl 1939) er norskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Noregs árin 1981, 1986–1989, og 1990–1996, og framkvæmdarstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá 1998 til 2003.
Ævi
[breyta | breyta frumkóða]Gro fæddist í Bærum og gekk snemma til liðs við Verkamannaflokkinn. Hún útskrifaðist sem læknir frá Háskólanum í Osló 1963 og fékk meistaragráðu í lýðheilsu frá Harvard háskóla árið 1965.
Gro var umhverfisráðherra Noregs á árunum 1974 til 1979 en í febrúar 1981 fram í október tók hún sér sæti í forsætisráðherrastólnum, fyrst kvenna. Ríkisstjórn hennar vakti líka mikla athygli, því af 18 ráðherrum ríkisstjórnarinnar voru 8 konur – mun meira en áður hafði tíðkast.
Hún var einnig forsætisráðherra á árunum 1986 til 1989 og 1990 til 1996. Hún hætti sem formaður norska verkamannaflokksins árið 1992.
Frá 1998 til 2003 var Gro framkvæmdarstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Fyrirrennari: Odvar Nordli |
|
Eftirmaður: Kåre Willoch | |||
Fyrirrennari: Kåre Willoch |
|
Eftirmaður: Jan P. Syse | |||
Fyrirrennari: Jan P. Syse |
|
Eftirmaður: Thorbjørn Jagland | |||
Fyrirrennari: Hiroshi Nakajima |
|
Eftirmaður: Jong-Wook Lee |