Fara í innihald

Goðareynir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Goðareynir
Sorbus latifolia
Sorbus latifolia
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Rósaættbálkur (Rosales)
Ætt: Rósaætt (Rosaceae)
Undirætt: Reynisætt (Maloideae)
Ættkvísl: Reyniviður (Sorbus)
Undirættkvísl: Torminaria
Tegund:
S. latifolia

Tvínefni
Sorbus latifolia
(Lam.) Pers.
Samheiti

Sorbus guadarramica Pau
Sorbus aria subsp. latifolia (Lam.) Rouy & E. G. Camus
Pyrus latifolia (Lam.) Syme
Pyrus latifolia (Lam.) Peterm.
Pyrus latifolia (Lam.) Lindl. ex Steud.
Pyrus intermedia var. latifolia (Lam.) DC.
Pyrus aria f. latifolia (Lam.) Hook.
Crataegus latifolia Lam.
Aria latifolia (Lam.) M. J. Roem.

Goðareynir (fræðiheiti: Sorbus latifolia) er tegund reyniviðar sem vex í Evrópu og verður rúmlega 15 metrar að hæð. Hann er með breiða krónu og gljáandi greinar.[1]

Goðareynir er meðalstórt sumargrænt tré sem verður á milli 10 og 20 metra hátt, með bol sem verður allt að 60 cm í þvermál. Blöðin eru 5-10 cm löng og breið (allt að 20 cm löng og 12 cm breið), en oftast eru þau jafn breið og þau eru löng. (Latifolia er latína fyrir „breiðblaða“). Þau eru græn að ofan, grálóhærð að neðan, með sex til tíu þríhyrndar tennur á hvorum jaðri. Hvít blómin eru 1-1,5 cm í þvermál, í um átta cm (þvermál) hálfsveip. Berin eru kringlótt, dauflega brúnrauð, 10-12 mm í þvermál, með stórum fölum loftaugum, og þroskast seint að hausti.[2][3][4]

Goðareynir er af blendingsuppruna, milli flipareynis og einhverrar tegundar af Aria-undirættkvíslinni (seljureynir og fleiri), en fjölgar sér með geldæxlun og eru afkvæmin eins og móðurtréð.[2] Hann er fjórlitna.

Hann var áður talinn vera afbrigði af silfurreyni og var meðhöndlaður sem slíkur af nokkrum höfundum, svo sem A. P. de Candolle og J. C. Loudon á nítjándu öld. Á sama tíma merkti ræktandinn George Loddiges, sem Loudon hafði í miklum metum, trén í trjásafni sínu í Abney Park Cemetery 1840 sem Sorbus latifolia sem er nú viðurkennt nafn tegundarinnar. Tegundarsamheitin endurspegla mismunandi hugmyndir fólks um uppruna tegundarinnar og flokkun síðustu tvær aldirnar, svo sem; Crataegus latifolia Lam.; Pyrus latifolia (Lam.) Lindl.; P. intermedia var. latifolia (Lam.) D.C., og P. edulis Willd.

Útbreiðsla

[breyta | breyta frumkóða]

Goðareynir óx upprunalega aðeins í Fontainebleau sunnan við París í Frakklandi, þar sem tegundin hefur þekkst síðan á átjándu öld. Þar sem hann er frjósamur og fjölgar sér með geldæxlun hefur hann breiðst út langt frá uppruna sínum í hinum vernduðu Fontainebleau-skógum, svo sem í Abney Park Cemetery (í Stoke Newington, London).

Ræktun og nytjar

[breyta | breyta frumkóða]

Goðareyninum frá Fontainebleau hefur verið plantað í garða til skrauts, eða í trjásöfn, eða einka- og almenningsgarða um Evrópu og Norður-Ameríku, frá því hann var kynntur sem garðplanta um 1750.

Þó það sé sjaldgæft, er tréð nytjað á nokkra vegu. Æt berin voru seld á götumörkuðum í Fontainebleau til um 1950 og einsleitur og endingargóður viðurinn hefur reynst nytsamur til nokkurra hluta.

Hinir fornu skógar sem hann vex í eru undir vernd Frönsku skógastofnunarinnar (Office National des Forêts).

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Sorbus latifolia“. Lystigarður Akureyrar. Afrit af upprunalegu geymt þann 5. ágúst 2020. Sótt 12. apríl 2016.
  2. 1 2 Rushforth, K. (1999). Trees of Britain and Europe. Collins. ISBN 0-00-220013-9.
  3. ↑ Mitchell, A. F. (1974). A Field Guide to the Trees of Britain and Northern Europe. ISBN 0-00-212035-6.
  4. ↑ Mitchell, A. F. (1982). The Trees of Britain and Northern Europe. Collins. ISBN 0-00-219037-0.
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.