Gulvestungar
Gulvestungar (franska: Gilets jaunes) eru frönsk mótmælahreyfing sem hafa reglulega mótmælt stjórnarstefnum Emmanuels Macron Frakklandsforseta frá því í október árið 2018. Mótmælin eru kennd við gul endurskinsvesti sem mótmælendurnir klæðast, en samkvæmt frönskum lögum verða slík vesti að vera í öllum bílum. Mótmælaalda gulu vestanna hefur breiðst út til nokkurra nágrannaríkja Frakklands, meðal annars til Belgíu.[1]
Í upphafi voru mótmælin gegn nýjum eldsneytisskatti sem stjórn Macrons hugðist setja en fljótlega tóku mótmælin á sig mun breiðari mynd og hafa almennt beinst gegn háum kostnaði lifnaðar, hárri skattbyrði verkastétta og lágum launum í Frakklandi.[2] Mótmælahreyfingin er ómiðstýrð og rekur uppruna sinn til samfélagsmiðla eins og Facebook. Þar sem hreyfingin lýtur engri ákveðinni forystu er stefna hennar óljós og kröfur hennar mjög á reiki.[3] Í sumum tilfellum hafa mótmælendurnir reynst ósammála innbyrðis um markmið hreyfingarinnar.[4] Andstæðingar Macrons bæði lengst til hægri, þar á meðal Marine Le Pen, og lengst til vinstri, þar á meðal Jean-Luc Mélenchon, hafa lýst yfir stuðningi við hreyfinguna.
Mótmælin hafa leitt til þess að hætt var við eldsneytisskattinn sem var kveikjan að hreyfingunni.[5] Í ávarpi til þjóðarinnar lofaði Macron forseti jafnframt 100 evra hækkun á lágmarkslaunum og að fallið yrði frá áætlunum um aukna skattlagningu á lægstu tekjuhópa landsins.[6] Mótmælin hafa þó haldið áfram.[7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „„Gulu vestin" mótmæla í Brussel“. mbl.is. 8. desember 2018. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ „Verslunargötur helstu túristaborgar heims í herkví rétt fyrir jól“. Kvennablaðið. 10. desember 2018. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ Egill Helgason (11. desember 2018). „Hin afskaplega ósamstæða stefna Gulu vestanna“. DV. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ Egill Helgason (9. desember 2018). „Gulu vestin og vandi Macrons“. DV. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ Þórgnýr Einar Albertsson (7. desember 2018). „Fastur á milli steins og sleggju“. Vísir. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ „Lofar launahækkunum og skattaívilnunum“. mbl.is. 10. desember 2018. Sótt 15. desember 2018.
- ↑ „Gulu vestin safnast saman í París“. mbl.is. 15. desember 2018. Sótt 15. desember 2018.