Fritillaria micrantha
Útlit
Fritillaria micrantha | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Fritillaria micrantha A.Heller | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
|
Fritillaria micrantha, er N-Amerísk laukplanta af liljuætt, og var fyrst lýst af Amos Arthur Heller.[1] A.Heller, 1910 In: Muhlenbergia 6: 83/>
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Fritillaria micrantha hefur uppréttan stöngul sem verður milli 0,5 - 1 m á hæð. Hin löngu, beinu, örmjóu blöð vaxa í hvirvingum á neðri hluta stöngulsins og stök nær toppnum. Stöngullinn er með eitt eða fleiri lútandi blóm í hverri blaðöxl. Blómið er með sex grönn krónublöð, hvert 1-2 sm á lengd. Þau eru breytileg í útliti en eru yfirleittfjólulituð til grængul og oft dröfnótt eða með jaðarinn með öðrum lit. Fræið er vængjað.[1]
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Þessi tegund vex frá Sierra Nevada í Kaliforníu, þar sem það er algengt í þurrum fjallshlíðum. Hún hefur einnig fundist í Diablo Range í San Benito County.[2]