Frederic de Forest Allen
Útlit
Frederic de Forest Allen (1844 – 1897) var bandarískur fornfræðingur frá Oberlin í Ohio.
Allen brautskráðist frá Oberlin College árið 1863 og hélt til Þýskalands. Hann nam við háskólann í Leipzig frá 1868 til 1870 og lauk náminu með doktorsgráðu. Doktorsritgerð hans hét De Dialecto Locrensium (Um lókríska mállýsku).
Að námi sínu loknu varð hann prófessor við háskólann í Austur-Tennessee, háskólann í Cincinnati og Yale College. Hann kenndi klassíska textafræði við Harvard síðustu sautján ár ævi sinnar.
Helstu ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- Remnants of Early Latin (1880)
- Greek Versification in Inscriptions (1888)
- Æschylus: The Prometheus Bound and the Fragments of the Prometheus Unbound (1897)