Fara í innihald

Íslandsmót í knattspyrnu innanhúss

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Íslandsmót innanhúss (oft nefnt Futsal) er haldið ár hvert og spilað í nokkrum riðlum í nóvember og desember.
Úrslitakeppni er að lokum kláruð á einni helgi í Laugardalshöll.
Keppnin hefur verið haldin síðan 2008. Árið 2007 fór fram kynningarmót í Futsal í desember 2006 og janúar 2007, en ekki var keppt til úrslita heldur var mótið í einum riðli enda var aðeins um kynningarmót að ræða og fyrsta mótið var haldið árið eftir.

Íslandsmeistarar í Futsal karla

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Sigurvegari Úrslit 2. sæti
2008 Valur 5-2 (2-2) Víðir
2009 Hvöt 6-2 (2-0) Víðir
2010 Keflavík 6-5 Víðir
2011 Fjölnir 3-2 (1-1) Víkingur Ó.
2012 ÍBV 5-0 Víkingur Ó.
2013 Víkingur Ó. 5-2 (1-0) Valur
2014 Fjölnir 6-8 (1-1) Fylkir

[1]

Íslandsmeistarar í Futsal kvenna

[breyta | breyta frumkóða]

Íslandsmót kvenna í knattspyrnu innanhúss hefur verið haldið síðan 2009.
Fyrstu tvö árin var aðeins um úrslitakeppni að ræða.
2011 var aðeins um deildarkeppni að ræða. 2012 var fyrsta úrslitakeppnin eftir tveggja riðla keppni.

Ár Sigurvegari Úrslit 2. sæti
2009 HK/ Víkingur 6-1 (3-1) Sindri
2010 ÍBV 5-1 Þróttur R.
2011 Þróttur R. deildark. Álftanes
2012 ÍBV deildark. Fylkir
2013 Valur 6-5 (1-1) ÍBV
2014 Valur 4-3 (1-2) Álftanes

[2]

  1. http://www.ksi.is/
  2. http://www.ksi.is/