Árósar
Árósar | |
---|---|
Land | Danmörk |
Íbúafjöldi | 277.086 (2019) |
Flatarmál | 98,1 km² |
Póstnúmer | 8000, 8200, 8210 |
Vefsíða sveitarfélagsins | https://www.aarhus.dk/ |
Árósar (danska: Aarhus eða Århus, á miðöldum Aros) er önnur stærsta borg Danmerkur með 277.086 íbúa (2019) og enn fleiri í þéttum byggðum í nágrenninu. Árósar er með eina stærstu gámahöfn í Skandinavíu og er höfnin einnig ásamt 100 stærstu gámahöfnum í heiminum. Árósar eru á Jótlandi og því hluti af meginlandi Evrópu, ólíkt Kaupmannahöfn. Í Árósum er tiltölulega hátt hlutfall innflytjenda, eða um 12%. Í borginni er Árósaháskóli þar sem tæplega 12.000 nemendur voru við nám árið 2005. Í dag hins vegar hefur skólinn stækkað til mikilla muna vegna sameiningar við aðrar skólastofnanir og telja nemendur skólans í heildina vera ca. 34.000.[1]
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Víkingabærinn
[breyta | breyta frumkóða]Elsti fornleifafundur sem fundist hefur í Árósum er frá enda sjöundu aldar. Elsti húsafundur er af hálfniðurgröfnum húsum sem að voru bæði notuð sem heimili og verkstæði. Í húsunum og jarðlögunum sem umlykja húsin hefur meðal annars fundist greiða, skartgripir og samskonar hlutir sem gefa til kynna að búseta á svæðinu hafi verið nálægt níundu öld.
Minni bæjarsamfélög eins og Holmstrup (Árósar), sem er nálægt Árósum er dagsett nálægt 800 í heimildum frá 1294.
Um árið 1040 voru slegnar myntir í Árósum, fyrst af Hörða-Knúti og seinna af Magnúsi góða.
Virkisgarður
[breyta | breyta frumkóða]Á víkingatímabilinu var Árósar umlykin af varnargarði í formi hálfhrings. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær myndun varnargarðsins átti sér stað en þó er talið að það sé nokkrum árum eftir fyrstu búsetu á svæðinu, fyrri hluta níundu aldar. Uppgröftur vorið 2005 sýndi að varnargarðurinn var byggður mjög hratt upp í kringum 934, sem gæti verið í samhengi við árás Hinriks Fuglafangara á Jótland. Seinni hluta níundu aldar var varnargarðurinn styrktur og árið 1200 var hann stækkaður gríðarlega. Eftir seinustu stækkun var varnargarðurinn 20 metra breiður og sex til átta metra hár.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ BESTAND AF STUDERENDE, OKTOBER 2005 Geymt 4 febrúar 2009 í Wayback Machine, Aarhus Universitet, November 21 2005 Snið:Da icon
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Opinber heimasíða borgarinnar
- Visit Aarhus, opinber ferðamannasíða
- VR AARHUS Geymt 15 október 2007 í Wayback Machine