Xenofon frá Efesos
Útlit
Xenofon frá Efesos (uppi á 2. – 3. öld?) var grískur rithöfundur.
Varðveitt verk hans er Efesossagan um Anþíu og Habrokomes en það er ein af elstu skáldsögum heims auk þess að vera ein af fyrirmyndum Williams Shakespeare við ritun leikritsins Romeo and Juliet.
Ekki má rugla Xenofoni frá Efesos saman við eldri og frægari nafna sinn frá Aþenu, hermanninn og sagnaritarann Xenofon.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Aðrir grískir skáldsagnahöfundar:
- Karíton — Ástir Kæreasar og Kallirhoe
- Akkilles Tatíos — Levkippe og Kleitofon
- Helíodóros frá Emesa — Eþíópíusaga
- Longos — Dafnis og Kloe
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Xenophon of Ephesus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. nóvember 2005.