Valentína Tereshkova
Útlit
Valentína Tereshkova Валенти́на Терешко́ва | |
Fyrsta konan í geimnum | |
Fædd | Valentína Vladimirovna Tereshkova 6. mars 1937 Bolshoje Maslenníkovo, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Rússlandi) |
---|---|
Tími í geimnum | 2 dagar, 23 klukkustundir og 12 mínútur |
Verkefni | Vostok 6 |
Undirskrift |
Valentína Vladímírovna Tereshkova (rússneska: Валенти́на Влади́мировна Терешко́ва;) (f. 6. mars 1937) er sovéskur geimfari og fyrsta konan sem fór út í geiminn 16. júní 1963.
Tereshkova hefur jafnframt verið virk í sovéskum og rússneskum stjórnmálum frá því á sjöunda áratugnum. Hún situr nú á rússneska þinginu fyrir stjórnarflokkinn Sameinað Rússland.[1] Árið 2020 flutti hún tillögu að stjórnarskrárbreytingum til að gera Vladímír Pútín forseta kleift að framlengja stjórnartíð sína umfram leyfilegan hámarksfjölda kjörtímabila.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „50 ár síðan Tereskhova fór út í geim“. RÚV. 16. júní 2013. Sótt 29. apríl 2023.
- ↑ „Rússneska Dúman gefur Pútín grænt ljós til 2036“. Varðberg. 10. mars 2020. Sótt 29. apríl 2023.