Myndbandsdómgæsla
Myndbandsdómgæsla, skjádómgæsla, vídeódómgæsla eða VAR (enska: video assistant referee, stytting: VAR) er þegar dómarar notast við myndbönd af atvikum og heyrnartól og hljóðnema í hópíþróttum til að komast að niðurstöðu í dómum er varða leikinn.
Knattspyrna
[breyta | breyta frumkóða]Tilraunir með VAR voru gerðar einna fyrst í efstu deild Hollands, Eredivisie, árið 2014. Sepp Blatter fyrrum stjóri FIFA var mótfallinn VAR en arftaki hans Gianni Infantino sem tók við árið 2016 var þeim mun jákvæðari.
Innleiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Myndbandsdómgæsla var fyrst notuð í efstu deild í Ástralíu árið 2017. Sama ár var hún notuð í Bundesliga í Þýskalandi, Serie A á Ítalíu, MLS í Bandaríkjunum og árið eftir í La Liga á Spáni. Á Englandi hefur hún verið notuð frá árinu 2017 í bikarkeppnum en ákveðið var að nota VAR í ensku úrvalsdeildinni fyrst tímabilið 2019-2020. Skjádómgæsla verður einnig innleidd í Meistaradeild Evrópu sama tímabil. [1].
VAR var notað á HM 2018 í Rússlandi í fyrsta sinn á heimsmeistararamóti.
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Myndbandsdómgæsla var fyrst notuð í umspilsleik Íslands og Rúmeníu (fyrir EM 2021) í október 2020.
Notkun
[breyta | breyta frumkóða]VAR er notað í þessum tilvikum:
- Mörk og hvort brot hafi verið í undanfara þeirra, svo sem rangstaða eða líkamlegt brot.
- Vítaspyrna. Hvort brot feli í sér víti.
- Rautt spjald. (Aðrar villur er ekki hægt að skoða og ekki annað gult spjald á leikmann)
- Röng kennsl borin á leikmann þegar gefið er spjald. Hvort leikmaðurinn sé sá sem í raun framdi brotið sem felur í sér gult eða rautt spjald.
Bæði aðaldómari leiks og VAR dómarar í skjáherbergi geta átt frumkvæði að samskiptum til að fara yfir atvik. Dómari getur þá farið yfir atvikið á skjá ef þess þarf. Hann gefur þá merki og teiknar eins konar ramma/skjá með höndum.
Handbolti
[breyta | breyta frumkóða]Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Haustið 2018 var samþykkt að; dómarar leikja geta nýtt sér myndbandsupptökur til lokaákvörðunar um dóma í leikjum sem eru í beinni sjónvarpsútsendingu sé slíkt í boði. Þá eru atvikin meðal annars: Hvort bolti fer yfir marklínu, hvort tími sé runninn út, óíþróttamannsleg atvik, hvort leikmanni skuli refsað og hvort skipting sé röng. [2]
Körfubolti
[breyta | breyta frumkóða]Í NBA hefur myndbandsdómgæsla verið notuð í lok leikja til að skera úr um vafaatvik. Aðallega í lok leikja. Hægt er að notast við takmarkaðan fjölda atvika.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Video assistant referee“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 26.sept 2018.
- ↑ Skjádómgæsla innleidd í ensku úrvalsdeildina Rúv, skoðað 19. nóv, 2018.
- ↑ Hvenær eiga dómarar að nota myndbandsupptökur? Rúv, skoðað 9. mars, 2018.