Vínland
![Skálholtskortið svo kallaða sem sem sýnir latneskar útgáfur af norrænum örnefnum í Norður-Atlantshafi. Kortið var upphaflega gert af Sigurði Stefánssyni, skólameistara í Skálholti 1590. Sú gerð er horfin en afrit Þórðar biskups Þolákssonar frá 1690 hefur varðveist. ''Iotun-heimar'' ([[Jötunheimar]]) ''Riseland'' (Risaland]]) | ''Grönlandia'' ([[Grænland]]) | ''Helleland'' ([[Helluland]]) | [[Markland]] | ''Skrælinge Land'' (Skrælingaland]]) | ''Promontorium Winlandiæ'' (Vinlandsskagi]])](http://thumb.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a8/Sk%C3%A1lholt_map_1690_copy_%28cropped%29.png/250px-Sk%C3%A1lholt_map_1690_copy_%28cropped%29.png?utm_source=is.wikipedia.org&utm_campaign=parser&utm_content=thumbnail)
- Iotun-heimar (Jötunheimar)
- Riseland (Risaland)
- Grönlandia (Grænland)
- Helleland (Helluland)
- Markland
- Skrælinge Land (Skrælingaland)
- Promontorium Winlandiæ (Vinlandsskagi)
Vïnland var svæði við strönd núverandi Norður-Ameríku sem norrænir menn könnuðu samkvæmt Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða um árið 1000 e.Kr. Það er næstum fimm öldum fyrir ferðir Kristófers Kólumbusar [1] og John Cabots.[2] til Nýja heimsins. Vínland var ásamt Marklandi og Hellulandi, landsvæði vestan við Grænland sem Bjarni Herjólfsson sá álegndar, Leifur Eiríksson nafngaf og Þorfinnur Karlsefni Þórðarson kannaði samkvæmt Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða. Vínland var syðst af þessum svæðum en engin vissa er um hvar það landsvæði sem nefnt var Vínland var í raun. Stór hluti af landlýsingum sagnanna samsvarar nútímaþekkingu á siglingum yfir Atlantshafið og meðfram austurhluta Kanada.[3]
Árið 1960 fundust fyrstu áþreifanlegu sönnunargögnin, L'Anse aux Meadows á norðurhluta eyjarinnar Nýfundnaland, um norræna búsetu í Norður-Ameríku. [4] [5] Fyrir þennan fund var Vínland aðeins þekkt úr Islendingasögum og miðaldaritum. Fornleifafræðingar hafa stundað mikinn uppgröft og rannsóknir á L'Anse aux Meadows, og þær hafa staðfest að norrænir menn hafa kannað talsvert svæði á meginlandi Norður-Ameríku.[6] Fornleifafræðingar fundu meðal annars smjörhnetur (latína: Juglans cinerea) við uppgröftinn í L'Anse aux Meadows, en nyrstu slóðir þar sem þessi hnetutegund vex eru við mynni St.Lawrence-flóa og norð-austurhluta New Brunswick. Þessar hnetur hafa aldrei vaxið á Nýfundnalandi.[7]
Landafundirnir í Íslendingasögunum
[breyta | breyta frumkóða]
Helstu frásagnirnar um ferðir norrænna mann til Vínlands eru í tveimum Íslendingasögum: Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu sem stundum eru nefndar saman sem Vínlandssögurnar. Þessar sögur varðveittust í munnlegri geymd þar til þær voru skráðar um það bil 250 árum eftir atburðina sem þær lýsa áttu að gerast. Þessar tvær útgáfur af sögunni eru dæmi um erfiðleikana að nota fornar ritaðar heimildir sem sönnun fyrir sögulegum atburðum, meðal annars þar sem þær hafa marga sameiginlega söguþræði en segja frá þeim á mismunandi hátt og með mismunandi persónum. Til dæmis er tilnefndir tveir ólíkir menn sem nefndir eru Bjarni sem villast í hafi.
Samkvæmt sögunum var það talsverður fjöldi norrænna manna sem fóru til Vínlands. Fylgdarmenn Þorfinns Karlsefnis voru 160 samkvæmt Eiríks sögu rauða, en 60 samkvæmt Grænlendinga sögu. Samkvæmt þeirri sögu hafði Leifur Eiríksson 35 manna hóp, Þorvaldur Eiríksson 30 manna hóp og Helgi og Finnbogi 30 fylgdarmenn. [8]
Samkvæmt Eiríks sögu rauða sigldi Þorfinnur Karlsefni með 160 manna flokk frá Grænlandi yfir opið haf og fundu Helluland, þar á eftir Markland, og eftir áframhaldandi siglingu Kjalarnes, Furðustrandir, Straumfjörð og að lokum stað sem hét í Hópi, þar sem voru sjálfsánir hveitiakrar og vínviður og enginn snjór féll á veturna. Eftir nokkurra ára fjarveru frá Grænlandi kusu þeir þó að snúa aftur heim þegar þeir gerðu sér grein fyrir því að þeir myndu annars standa frammi fyrir endalausum átökum við innfædda.
Eiríks saga rauða vísar til staðarnafnsins Vínland á fjóra vegu. Í fyrsta lagi er það sagt vera landið sem Leifur Eiríksson fann. Karlsefni og menn hans finna síðan vínber yrir sunnan Furðustrandir. Síðar segir sagan að Vínland sé sunnan við Markland, með Kjalarnes nyrst. Hins vegar er einnig sagt að á meðan þeir voru við Straumfjörð vildi Þórhallur veiðimaður fara norður um Furðustrandir og fyrir Kjalarnes og leita þar að Vínlandi en Karlsefni vill fara suður og austur fyrir land því honum finnst landið í suðurátt allt betra því lengra í suður.
Eiríks saga er varðveitt í tveimur íslenskum handritum: Hauksbók frá fyrri hluta 14. aldar og Skálholtsbók frá fyrri hluta 15. aldar. Báðar byggjast á frumriti sem var skrifað eftir 1263 en það frumrit mun hafa verið skrifað eftir texta frá fyrri hluta 13. aldar.[9]. Grænlendinga saga er aðeins varðveitt í Flateyjarbók frá um 1387 og er hluti af einni gerð Ólafs sögu Tryggvasonar hinnar mestu.[10]
Að neðan eru samtektir af sögunum tveimur:
Grænlendinga saga
[breyta | breyta frumkóða]
Samkvæmt Grænlendingasögu uppgötvaði Bjarni Herjólfsson fyrir tilviljun ný lönd þegar hann sigldi frá Noregi til Grænland til að heimsækja föður sinn, á öðru ári landnáms Eiríks rauða á Grænlandi (um 986 e.Kr.). Hann dvaldi síðan á Herjólfsnesi hjá föður sínum og sneri ekki aftur til Noregs fyrr en um árið 1000 e.Kr. Þar sagði hann Eiríki jarli frá löndunum sem hann hafið séð og var gagnrýndur fyrir að hafa ekki skoðað þau nánar. Eftir heimkomuna til Grænlands seldi hann Leifi Eiríkssyni skip sitt. Leifur fór í leiðangur sem fór öfuga leið við Bjarna, framhjá landi sem var eins og ein hella upp að jöklum og kallaði Hellulandi og síðan skógi þakið land sem hann nefnir Markland. Eftir að hafa siglt tvo daga yfir opið haf fann leiðangurinn nýtt land og sigldu vestur fyrir nes sem gekk norður af landinu. Þeim fannst þetta gott land og gerðu þar búðir og hús mikil. Dag einn hvarf Tyrkir, gamall fjölskylduþræll, hann segist hafa fundið vínber og vínvið þegar hann kom aftur. Um vorið sneri Leifur aftur til Grænlands með skipsfarm af timbri og eftirbát fullan af vínberjum. Á leiðinni heim sá hann skip strandað á skeri og bjargaði áhöfninni. Hann var síðan kallaður Leifur heppni. Annar leiðangur undir forystu Þorvalds, bróður Leifs, með um 40 mönnum fer til Vïnlands og dvaldi í þrjá vetur í Leifsbúðum, könnuðu þeir vesturströnd landsins fyrsta sumarið og austurströndina það seinna. Þeir brutu kjölinn undan skipinu við nes sem þeir Kjalarnes. Lengra suður, á þar sem Þorvaldur vildi stofna byggð, hittu Grænlendingarnir nokkra Skrælingja fyrir og drápu þá. Í kjölfarið sótti að þeim mikið lið á húðkeipum og Þorvaldur lést af örvarskoti. Voru menn Þorvald einn vetur enn í búðunum og fóru síðan til Grænlands með vínber og vínvið sem farm.
Þorsteinn, annar bróðir Leifs, giftist Guðríði, ekkju skipstjórans sem Leif bjargaði, og gerði út þriðja leiðangurinn til að sækja lík Þorvalds, en rak af leið og voru í hafvillu allt sumarið. Þorsteinn eyddi vetrinum með Guðríði sem gestur í Vestribyggð á Grænlandi, en lést þar úr sjúkdómi. Veturinn eftri giftist Guðríður Íslendingi að nafni Þorfinnur Karlsefni. Þau ákveða að fara til Vínlands og byggja landið og höfðu með sér alls konar fénað, meðal annars griðung. Karlsefni bað Leif um að fá hús hans í Vínlandi en hann sagðist lána húsin en gefa þau ekki. Gekk nautfé Grænlendinga úti í lausagöngu. Eftir fyrsta veturinn urðu Grænlendingarnir varir við Skrælingja en þeir hræddust baul nautsins. Á sumrin heimsóttu þau heimamenn sem voru hræddir við naut Grænlendinganna en vildu hafa vöruskipti og höfðu alls konar skinnvöru og vildu helst vopn fyrir en Karlsefni bannaði það. Fengu þeir mjólkurafurðir í vöruskiptunum. Á haustin fæddi Guðríður son sem fékk nafnið Snorri. Í vetrarbyrjun komu Skrælingjar aftur með vörur til skipta og reyndi einn þeirra að ná vopni og var drepinn. Það leiddi til bardaga milli Grænlendinganna og Skrælingja, féll fjöldi úr lið Skrælingja en hinir höfðu minniháttar mannfalli.
Voru þeir Karlsefni, Guðríður og fylgdarmenn þeirra einn vetur enn á Vínlandi. En um vorið ákveður Karlsefni að þau skulu snú aftur til Grænlands og sigla með mikinn farm af vínviði, berjum og skinnvöru. Skömmu síðar kom skip undir forystu tveggja Íslendinga, Helga og Finnboga, til Grænlands og Freydís, dóttir Eiríks rauða, sannfærði þá um að taka þátt í leiðangri til Vínlands. Freydís bað Leif um að fá hús hans í Vínlandi en hann svaraði eins og Karlsefni, sagðist lána húsin en gefa þau ekki eins. Þegar þeir komu til Vínlands fóru bræðurnir með eigur sínar í hús Leifs, sem reitti Freydís til reiði og bæðurnir byggðu sér þá eigin skála. Hún heimsótti þá síðan að vetri til og bað um að kaupa eitt af skipum þeirra og fullyrti að hún vildi fara aftur til Grænlands, og samþykktu bræðurnir það. Freydís fór aftur og sagði Þorvarði eiginmanni sínum hið gagnstæða og þeir höfðu barið hana, sem leiddi til þess að allir Íslendingarnir voru drepnir, að skipun Freydísar, þar á meðal fimm konur sem Freydís drap sjálf. Um vorið sneru Grænlendingarnir heim með góðan farm, en Leifur komst að sannleikanum um Íslendingana. Þetta var síðasta Vínlandsferðin sem skráð er í sögunni. Hér má lesa alla söguna.
Eiríks saga rauða
[breyta | breyta frumkóða]
Í Eiríks sögu rauða, hinsvegar, uppgötvaði Leifur Eiríksson þessi nýju lönd af tilviljun þegar hann ferðaðist frá Noregi til Grænlands eftir dvöl hjá Ólafi konungi Tryggvasyni. Konungur fól Leifi að kristna Grænland. Hann var lengi í hafvillum en fann síðan lönd þar sem voru sjálfsánir hveitiakrar og vínviður. Hann fann menn á skipsflaki og bjargaði þeim og kom á kristni í landinu og var þess vegna kallaður Leifur heppni. Þorsteinn, bróðir Leifs, vildi leita landsins sem Leifur fann en leiðangur hans villtist í hafi og eyddi öllu sumrinu í að sigla um Atlantshafið. Við heimkomuna vakti hann bónorðs við Guðríði Þorbjarnardóttir og giftust þau. Þorsteinn eyddi vetrinum sem gestur á bæ í Vesturbyggð á Grænlandi með Guðríði en lést úr sjúkdómi. En áður en hann dó spá fyrir um framtíð Guðríðar og sagði fyrir að forlög hennar mundu verða mikil. Veturinn eftir giftist Guðríður Íslendingi sem hét Þorfinnur Karlsefni. Karlsefni sem ásamt félaga sínum, Snorra Þorbrandssyni, ásamt samfylgdarmönnum ákváðu að fara að leita Vínlands. Í förinni voru einnig tveir Íslendingar, Bjarni Grímólfsson og Þórhallur Gamlason, og systkini Leifs, Þorvaldur og Freydís, ásamt eiginmanni hennar, Þorvarði, og höfðu með sér búfé. Þau sigldu fram hjá landi þöktu stórum hellum og nefndu Hellulandi og skógþöktu landi sem nefn var Marklandi og sigldu síðan fyrir skaga þar sem þau sáu kjöl báts og kölluðu Kjalarnesi. Síðan héldu þau áfram fram hjá afar löngum ströndum sem voru nefndar Furðustrandir. Lentu þar og sendu tvo hlaupara út til að kanna inn í landið. Eftir þrjá daga sneru þeir aftur með af vínberjum og hveiti. Eftir áframhaldandi siglingu komu þeir að firði með miklum straumum og kölluðu hann Straumsfjörð. Fórum þar í land og bjuggust þar um. Vetrarmánuðirnir voru harðir og var matur af skornum skammti en búfé þeirra komst vel af. Dag einn hvarf Þórhallur veiðimaður (sem hafði ekki tekið kristni), og fannst þar sem hann þuldi eitthvað. Skömmu síðar fannst hvalur strandaður og sagði Þórhallur veiðimaður að hann hafi verið gefinn sem svar við lofi hans á heiðnum guðum. Þeim sem átu af hvalnum varð ill að svo þeir báðu til hins kristna guðs og skömmu síðar batnaði veðrið.
Þegar vorið kom vildi Þórhallur Gamlason, Íslendingurinn, sigla norður um Kjalarnes til að leita að Vínlandi, en Þorfinnur Karlsefni kaus frekar að sigla suður eftir austurströndinni. Þórhallur tók aðeins níu menn með sér og skip hans rak á haf út í roki; hann og áhöfn hans sneru aldrei aftur. Þorfinnur, Snorri og Bjarni, ásamt Freydísi, sigldu suður eftir austurströndinni og stofnuðu byggð við bakka stöðuvatns, ofan við mikinn árós og fyrir framan eyrar miklar svo einungis var hægt að sigla inn í ána sem rann úr vatninu nema á háflæði. Landið kölluðu þeir í Hópi og fundu þeir sjálfsána hveitiakra og vínvið. Einn morgun komu ókunnugir menn á níu húðkeypum; þeir skoðuðu sig um og undruðust og fóru í friði. Voru þau þar um veturinn og var snjólaust og allur búfénaður gekk úti sjálfala.
Um vorið kom fjöldi húðkeypa og hófst vöruskipti og vildu Skrælingjarnir kaup sverð og spjót og helst annars rautt klæði, en Karlsefni bannaði sölu vopna. Þegar verslunin stóð yfir hljóp griðungur sem Karlsefnin átti út úr skóginum og baulaði hátt. Hræddust Skrælingjarnir og reru á burt. Þremur vikum seinna kom mikill fjöldi Skrælingja og varð úr bardagi og urðu Grænlendingarnir að hörfa undan. Freydís hæddi þá og vildi fylgja þeim, fann hún Þorbrand Snorrason dauðan og tók sverð hans. Hún bar sverðið við nakið brjóst sitt og flúðu Skrælingjarnir þá. Einn af Skrælingjunum tók upp járnöxi, hjó í tré og þótti bíta vel. Hjó síðan í stein og þá brotnaði öxin og kastaði henni frá sér. Grænlendingarnir sáu þá að þrátt fyrir að þetta væri mjög gott land mundi ófriðarástand stöðugt vera yfirvofandi og ótti við þá sem fyrir bjuggu. Yfirgáfu þau í Hópi og sneru aftur til Straumsfjarðar og drápu fimm innfædda sem þeir mættu á leiðinni, sofandi í skinnsekkjum.
Karlsefni, ásamt Þorvaldi Eiríkssyni og fleirum, fóru norður fyrir Kjalarnes til að leita eftir Þórhalli veiðimanni. Sigldu þeir síðan suður á bóginn hinu megin við nesið, með land á bakborða. Eftir langa siglingu fóru þeir í land og skaut þar einfættlingur ör í Þorvald og lést hannaf því. Sneru þeir aftur til Straumsfjarðar og voru þar hinn þriðja vetur en ágreiningur í hópnum um veturinn leiddi til þess að ákveðið var að fara á brott og snúa aftur til Grænlands. Þegar þeir komu til Marklands hittu þeir á fimm Skrælingja og náðu tveimur drengjum, skírðu þá og kenndu þeim sitt eigið tungumál. Komu þeir síðan til Grænlands og voru með Eiríki rauða um veturinn. Þetta var síðasta Vínlandsferðin sem er skráð í þessari sögu. Hér má lesa alla söguna.
Vínland og landaþekking á miðöldum
[breyta | breyta frumkóða]Adam frá Brimum
[breyta | breyta frumkóða]Elsta þekkta skriflega miðaldaheimildin um Vínland er að finna í bókinni Descriptio insularum Aquilonis (Lýsing á eyjum í norðri) eftir þýska klerkinn og miðaldasagnaritarann Adam frá Brimum (latína: Adamus Bremensis; þýska: Adam von Bremen.) Fæðingar- og dánardagar hans er óþekktir, en hann er talinn vera fæddur fyrir 1050 og hafi látist fyrir 1095), skrifaða um 1070-1075. Adam fór 1069 að hitta danska konunginn [Sveinn Ástríðarson] (einnig nefndur Sveinn Úlfsson) var en hann var talinn hafa mikla þekkingu á sögu og landafræði og gaf það Adam tækifæri til að afla sér upplýsinga um sögu og landafræði Danmerkur og annarra Norðurlandanna.[11]. Segir Adam fyrst frá Íslandi, Hálogalandi og Grænlandi, og segir síðan að Danirnir hefðu sagt hon frá Vínland, eyju í vestri þar sem yxi bæði vín og sjálfsáið hveiti og að þetta væri ekki vafasamur orðrómur, heldur staðreynd sem Danirnir sögðu frá.[12][13]
Ari fróði
[breyta | breyta frumkóða]Ari fróði nefnir Vínland í Íslendingabók sem hann ritaði á árunum 1122-1133. Þar segir Ari frá því að Eiríkur rauði hafi fundið „manna vistir“ á Grænlandi eftir sams konar fólk og byggði Vínland - sem Grænlendingar kölluðu Skrælingja. Svo virðist sem Ari geri ráð fyrir að Vínland sé alþekkt fyrirbæri. Athyglisvert er að hann skuli þó ekki geta neitt um hvernig fund Vínlands hafi borið að.[14]
Galvaneus Fiamma
[breyta | breyta frumkóða]
Eina þekkta heimildin um Markland á miðöldum í Suður-Evrópu er í króníku, sem nefnd er Cronica universalis, sem ítalski munkurinn Galvaneus Fiamma (ítalska Galvano Fiamma, f. 1283, d. 1344) frá Mílanó skrifaði á fyrri hluta 14. aldar. Hann virðist hafa verið fyrstur manna í Suður-Evrópu til að skrifa um lönd vestan við Grænland, og er þetta eina þekkta heimildin þaðan um Nýja heiminn fyrir ferð Kólumbusar árið 1492. Fiamma skrifaði fjölmörg rit um söguleg efni.[15] Það er talið að Fiamma hafi frétt af þessum löndum frá sjómönnum í hafnarborginni Genúa.[16]
Sigurður Stefánsson skólameistari
[breyta | breyta frumkóða]Elsta kortið þar sem Vínlands er getið var gert um 1590 af Sigurði Stefánssyni, skólameistara í Skálholti. Eftir nám við Kaupmannahafnarháskóla varð Sigurður kennari og skólameistari við Skálholtsskóla á biskupssetrinu í Skálholt. Sigurður sjálfur var barnabarn Gísla Jónssonar Skálholtsbiskups. Skálholtskortið svo kallaða sýnir latneskar útgáfur af norrænum örnefnum í Norður-Atlantshafi. Grænland er sýnt sem hluti af meginlandi norðurheimskautsins og Helluland, Markland og Skrælingaland sunnan og vestan við Grænland. Aðskilið frá Skrælingjalandi með mjóu sundi er langur og mjór skagi sem kallast á latínu Promontorium Winlandiæ, Vínlandsskagi. Skaginn er teiknaður nokkurn veginn á sömu breiddargráðum og England og Írland.[17]
Upprunalega kort Sigurðar er glatað, afrit hefur varðveist sem gert var árið 1690 fyrir Þórð biskup Þoláksson, sem var biskup í Skálholti. Kortið er í eigu Konunglega bókasafnsins í Danmörku.[18]
Polychronicon
[breyta | breyta frumkóða]Snemma á 14. öld var landafræðiritið Geographica Universalis tekið saman í Malmesbury-klaustrinu í Englandi. Það var síðan var notað sem heimild fyrir Polychronicon eftir Ranulf Higden sem eitt vinsælasta fræðsluefnið á ensku á miðöldum. Þessi rit, sem mögulega höfðu Adam frá Bimum sem heimild, höfðu óljósa hugmynd um staðsetningu þess lands sem þau nefndu Wintland, annað við hafið austan við Noreg, en hitt vestan við Danmörku. Í flestum handritum Polychronicon eru heimskort þar sem Wintland var merkt í Atlantshafi nálægt Íslandi.[19]
Allt til Afríku
[breyta | breyta frumkóða]Aðrir íslenskir textar frá svipuðum tíma gáfu aðra mynd af heiminum og sérlega landafræði norðursins. Norðan við Ísland var víðáttumikil, hrjóstrug slétta (það er íshellan á Norður-Íshafi) frá Bjarmalandi (í norður-Rússlandi) austan við Hvítahafið, allt til Grænlands, og síðan í vestur og suður voru í röð, Helluland, Markland og Vínland. Hins vegar vissu þeir sem rituðu þessa texta ekki hversu langt suður Vínland náði og töldu að það gæti náð alla leið til Afríku. Í bókinni Leiðarvísir ok borgaskipan, sem ritað var að fyrirsögn Nikuláss ábóta á Munkaþverá (sem lést 1159), segir:[20]
„Frá Bjarmalandi ganga lönd til óbyggða of norðurætt, allt til þess er Grænland tekur við. Frá Grænlandi í suður liggur Helluland, þá Markland. Þaðan er eigi langt til Vínlands, er sumir menn ætla, að gangi af Affríka.“[21]
Vínlandsferð Eiríks biskups
[breyta | breyta frumkóða]Konungsannáll greinir frá því að Eiríkur upsi Gnúpsson, fyrsti biskup Grænlendinga, hafi farið að leita Vínlands árið 1121. [22] Orðalag annálsins bendir til þess að Vínlandsferðir hafi þá legið niðri um skeið. Sennilegt er að biskupinn hefði ætlað að sinna kristniboði. Það mundi benda til þess að talið hafi verið að einhverjir Grænlendingar hafi sest að á Vínlandi, því að hitt er heldur ólíklegra að Eiríkur hafi ætlað að snúa Skrælingjum til réttrar trúar. Þess er ekki getið að hann hafi snúið aftur og þremur árum síðar var annar biskup, Arnaldur, sendur til Grænlands. Annað hvort hefur skip Eiríks upsa farist eða mögulega hefur hann lent í átökum við frumbyggja og látist.
Erkibiskupinn Assar Þorkilsson (latína: Asserus Thorkilli) í Lundi[23] vígði Eirík som „biskup yfir Grænlandi og Vínlandi á svæðum vantrúaðra“ (Episcopus Groenlandiae et Vinlandiae in partibus infidelium) árið 1121. Garðar á Grænlandi var gert að biskupsstól 1124. [24]
Hafreka frá Marklandi
[breyta | breyta frumkóða]Eina skriflega heimildin sem bendir til timburferða til Marklands var skráð í Skálholts annáll (sem var skráður um 1362), og segir um árið 1347 að þá hafi komið skip, minna en för hér [það er á Íslandi], af Grænlandi í Straumfjörð ytri (á Snæfellsnesi) akkerislaust. Á því voru 17 manns og hafði það farið til Marklands og síðan orðið hafreka til Íslands.[25]
Talið er að skipið hafi farið til Marklands til að ná í timbur.[26] Eftir fjölda mannanna í skipunu hefur það ekki verið öllu stærra en átt- til tólfæringur.[27]
Hvar var Vínland
[breyta | breyta frumkóða]Allt frá því að Arngrímur Jónsson fór að skrifa um Vínland í bókunum Crymogæa (1609) og Gronlandia (1688) hefur mikið verið rætt og ritað um Vínlandssögurnar. Íslendingar á sextándu öld töldu víst að „Nýi heimurinn“, sem evrópskir landfræðingar kölluðu „Ameríku“, væri það land sem lýst er í Vínlandssögunum. Allt frá því hafa verið vangaveltur beggja vegna Atlantshafsins um hvar þessi lönd hafi verið. Fræðimenn og annað áhugafólk hafa reynt að kortleggja leiðir Vínlandsfaranna og þar á meðal hvar Vínland hafi verið og um það eru skoðanir manna skiptar enn í dag. Það hefur ekki reynst auðvelt að sannreyna hvar Vïnland var, enda hefur skilgreiningin á Vínlandi verið nokkuð óljós. Landfræðilega er hugtakið Vinland stundum notað almennt til að vísa til allra svæða á Atlantshafsströnd Kanada. Einnig hafur verið varpað fram hugmyndum um að það sé austurströnd Norður-Ameríku, jafnvel allt suður að New York.
En flestir fræðimenn telja það hafa verið takmarkaðra svæði. Þannig er um kenningu Jónasar Kristjánssonar og samstarfsmanna hans um að Vínland sé nútíma Nýfundnaland og Straumfjörðurinn sem sagt er frá í Vínlandssögunum, þar sem Þorfinnur Karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir reyndu að setjast að, gæti verið Sop’s Arm í Whiter Bay á norðurströnd Nýfundnalands og að Kjalarnesið sé L´Anse aux Meadows. Þessi kenning byggir bæði á nýjum skilningi á Íslendingasögunum og á öðrum sögulegum heimildum um ferðir norrænna manna til Norður-Ameríku og á fornleifaskoðunum á Nýfundnalandi. [28].

Hins vegar segir sænsk-kanadíski fornleifafræðingurinn Birgitta Wallace, sem var forstöðumaður minjasafnsins á L´Anse aux Meadows og sérfræðingur í norrænni fornleifafræði í Norður-Ameríku, : „Vínland er strandsvæðið allt í kringum Saint Lawrence-flóa og á eyjum í flóanum.“[29]
Páll Bergþórsson kemst að svipaðri niðurstöðu með því að styðjast við ýmsar fræðigreinar, t.d. fornleifafræði, landafræði, veðurfræði, siglingafræði, mannfræði, grasafræði og dýrafræði, og þar að auki með því að fara í eigin könnunarferð um Nova Scotia, New Brunswick og nágrenni Québecborgar. Hann telur líklegt, eða að minsta kosti hugsanlegt að Vínlands sé að leita inn á Saint Lawrence-flóa eða jafnvel uppi í mynni Saint Lawrence-fljóts.[30]
L'Anse aux Meadows
[breyta | breyta frumkóða]
L'Anse aux Meadows er lítið fiskiþorp á á nyrsta tanga hins mikla norðurskaga Nýfundnalands, í fylkinu Nýfundnaland og Labrador í Kanada, um einum kílómetra sunnan við þorpið fundu norsku fornleifafræðing Helge Ingstad og Anne Stine Ingstad, fornminjar frá norrænni byggð árið 1960. Þau hjónin höfðu þá leitað minja á norðurströnd Nýfundnalands í samræmi viðlýsingar í Vínlandssögum. Svæðið var sett á Heimsminjaskrá UNESCO 1978.
Sagnfræðingurinn William A. Munn (1864–1939), sem bjó á Nýfundnalandi, setti fram þá tillögu, eftir að hafa rannsakað heimildir í Evrópu, í bók frá árinu 1914, Location of Helluland, Markland & Vinland from the Icelandic Sagas (Lega Hellulands, Marklands og Vínlands úr Íslendingasögunum), að landkönnuðir Vínlands „hafðu farið í land í Lancey Meadows, eins og það er kallað í dag“. [31]

Fornminjar í L'Anse aux Meadows voru grafnar upp undir stjórn Helge og Anne Stine Ingstad á árunum 1961-1968, meðal annars með þátttöku Kristjáns Eldjárns 1962.[32] Fornleifafræðingarnir rannsökuðu leifar átta norrænna húsa og eina kolagröf, fyrir utan ýmiskonar minjar innfæddra manna. Þrjú húsanna voru líklega íveruhús með langeldum á miðju gólfi, hin eru talin vera vöruskemmur eða verkstæði. Eitt þeirra var örugglega smiðja og rauðablásturshús og viðarkolagröf í grennd, sams konar og fundist hafa í Noregi og á Íslandi. .[33] Þarna fundust líka miklar minjar um járnsmíði og leifar af sundurklipptum hnoðsaumi skipa, tréspónum og aflóga smíðisgripum úr tré. Þar fyrir utan voru fjögur lítil naust grafin neðan við fjörukambin. Hins vegar hafa engar vísbendingar um fjós eða önnur gripahús eða búfé fundist í L'Anse aux Meadows.

Öll húsin voru byggð úr torfi með timburgrind að innan, og var torf bæði í þaki og veggjum. Bæði hafa verið notaðir strengir, hnausar og klömbrur í byggingarnar. Flestir veggir voru tvíhlaðnir með sandi og möl sem fyllingu og styrktir með strengjatorfi sent var lagt þversum, en ytri og innri hleðsla úr hnausum og strengjum. Þetta er sama byggingarlag og tíðkaðist á íslandi og Grænlandi.[34]
Mikið af minjum hefur fundist en heimilisáhöld og persónulegir munir eru fáir og nær eingöngu smáhlutir sem eigendur gátu auðveldlega glutrað niður. Meðal þess var lítil hringnæla sem var notuð til að næla saman föt, einnig snældusnúður úr tálgusteini og lítið nálabrýni úr kvarsi.[35]
Ekki er hægt að ákveða með neinni nákvæmni hvað þessi hús voru lengi notuð til búsetu en það hefur sennilega verið um fá ár að ræða, eða í mesta lagi fáeina áratugi fremur en aldir. Allar líkur eru á að byggðin hafi ekki staðið lengi því að öskuhaugar eru ekki miklir, í mesta lagi nokkur ár, og engin merki eru um grafreiti.[36] Árið 2021 sýndu rannsóknir að tré som notað var við byggingarnar hafi verið fellt ár 1021, það sýnir hins vegar ekki hvenær norrænir menn komu þangað eða eða hversu lengi þeir voru þar. Þessi aldursgreiningin byggist á kolefnisaldursgreiningu á viðarstykkjum sem hafa verið skornir með málmverkfærum sem frumbyggjar á svæðinu notuðu ekki. [37][38]
En steinverkfæri sem einnig fundust við L’Anse aux Meadows benda til þess að frumbyggjar Norður-Ameríku, líklega forfeður Beothuk- og Dorset-fólksins, hafi einnig búið á svæðinu, bæði fyrir og eftir dvöl norrænna manna.[39]
Flestir fræðimenn eru nú á þeirri skoðun að L’Anse aux Meadows hafi ekki verið Vínland. Ekki síst vegna þess að þar er ekkert að finna af þeim gæðum Vínlands sem sögurnar segja frá, svo sem vínberjum eða kjörviði. Hins vegar telja þeir að L’Anse aux Meadows hafi verið bækistöð þegar komið var frá Grænlandi því þar opnaðist leiðin suður á bóginn að suðurströnd St. Lawrenceflóa, til hins eiginlega Vínlands eða mögulega enn lengra. Bæði þegar þeir kom frá Grænlandi og aftur var haldið til Grænlands. Birgitta Wallace telur að Straumfjörður og Leifsbúðir sem nefndir í Eiríkssögu rauða og Grænlendingasögu séu sami staðurinn og L‘Anse aux Meadows.[40]
Í bækistöðunum hafa skipshafnirnar notað búðirnar til hvíldar og til að gera við skipin. Einnig gætu þeir haft þar vetursetu til að geta haldið áfram næsta sumar að sækja vörur frá hinu eiginlega Vínlandi eða bíða þess að ísa leysi við Nýfundnaland og Larbrador. Siglingaleiðin frá Leifsbúðum til Grænlands er mun styttri en frá Vínlandi sjálfu ef það hefur verið langt í suður. Norður og vestur Labradorhaf, allt suður að norðhluta Nýfundnalands er þakið hafís frá október byrjun fram til loka maí eða byrjun júní.[41]

Þótt almennt sé nú talið að L'Anse aux Meadows hafi verið bækistöð norrænna manna í landaleit og í leit að timbri og öðrum verðmætum en ekki tilraun til landnáms, þá er enn umdeilt hversu langt suður þeir fóru. Í Vínlandssögunum er sagt að vínber hafi fundist á Vínlandi og það bendir til þess að þeir hafi að minnsta kosti farið til suðurstrandar St. Lawrence-fljóts og fundið bæði villtan vínvið og hnetutré. Þrjár smjörhnetur (Juglans cinerea) fundust við L'Anse aux Meadows, en þessi hnetutegund vex aðeins sunnan við St. Lawrence-fljót.[42][43]

Vínberin sem sagt er að hafi fundist í Vínlandi gætu verið lækjavínviður (Vitis riparia), tegund af villtum þrúgum sem vaxa á trjám en en hafa aldrei vaxið á Nýfundnalandi. Grænlendingarnir hafa fundið tré umvafin lækjavínviði sunnan við L'Anse aux Meadows og kallað þau vínvið.[44]
L'Anse Aux Meadows hefur að öllum líkindum verið lítil og skammlíf bækistöð, fyrst og fremst notuð við skógarhögg og timburfluttninga og einnig skipaviðhalds, frekar en til landnáms eins og á Grænlandi.[45]
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tilvitnanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Specht, Joshua; Stockland, Etienne (2017). The Columbian Exchange. CRC Press. p. 23. ISBN 978-1-351-35121-8.
- ↑ Evan T. Jones, (2013) "Bristol, Cabot and the New Found Land, 1496–1500" í P. E. Pope og S. Lewis-Simpson (ritstj.), Exploring Atlantic Transitions: Archaeologies of Permanence and Transience in New Found Lands. Boydell Press. ISBN 1843838591
- ↑ Gisli Sigurðsson segir í formála að bókinni The Vinland Sagas. London: Penguin. bls. xv. ISBN 978-0-140-44776-7, útgefin 2008: „Sögurnar eru enn besta sönnun þess að slíkar ferðir til meginlands Norður-Ameríku hafi átt sér stað. Tilviljun eða óskhyggja geta einfaldlega ekki sett saman lýsingar á landslagi, náttúruauðlindum og lífsháttum frumbyggja sem Evrópubúar þekkja ekki og hægt er að staðfesta í Norður-Ameríku. “
- ↑ [ https://parks.canada.ca/lhn-nhs/nl/meadows L'Anse aux Meadows".] L'Anse aux Meadows National Historic Site of Canada. Parks Canada. 2018.
- ↑ Ingstad, Helge; Ingstad, Anne Stine (2001). The Viking Discovery of America: The Excavation of a Norse Settlement in L'Anse aux Meadows, Newfoundland. Checkmark Books. ISBN 0-8160-4716-2.
- ↑ Viking Archaeology, L’Anse aux Meadows, Archaeology in Europe
- ↑ Birgitta Wallace (1990): „Norrænar fornminjar í L´anse aux Meadows.“ Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1989. Ólafur Halldórsson þýddi. Bls. 148.
- ↑ Vinland and Ultima Thule. John Th. Honti. Modern Language Notes Vol. 54, No. 3 (Mar., 1939), bls. 159-172 Jstor.org
- ↑ Ólafur Halldórsson (útg.). 1985. Eiríks saga rauða. Texti Skálholtsbókar AM 557 4to. Islenzkfornrit 4 Viðauki. Reykjavík: Hið íslenska fomritafélag
- ↑ Þorláksson, Helgi (2001). "The Vinland Sagas in a Contemporary Light" (PDF). Approaches to Vinland. 4: 66–67.
- ↑ Catholic Encyclopedia, Adam of Bremen
- ↑ [ https://www.americanjourneys.org/AJ_PDF/AJ-058.pdf#:~:text=The%20Descriptio,to%20Vinland.%20Rafn%20gives%20a From Adam of Bremen’s Descriptio insularum Aquilonis] Wisconsin Historical Society. 2003.
- ↑ „Ennfremur sagði hann frá enn einni eyju sem margir höfðu uppgötvað í því hafi og kallað Vínland, af því að vínviður óx þar villtur og gaf af sér hið besta vín, og þar vex meira að segja yfrið nóg af ósánu korni. Heimildir okkar fyrir þessu eru ekki neinar kynlegar ímyndanir, heldur trúverðugar frásagnir Dana. Eftir þessa eyju, sagði hann, væri ekkert byggilegt land að finna í því hafi, því handan við það er fullt af ís og blindþoka.“ „Praeterea unam adhuc insulam recitavit a multis in eo repertam oceano, quae dicitur Winland, eo quid ibi vites sponte nascantur, vinum optimum ferentes. Nam et fruges ibi non seminatas habundare, non fabulosa opinione, sed certa comperimus relatione Danorum. Post quam insulam, ait, terra non invenitur habitabilis in illo oceano, sed omnia, quae ultra sunt, glacie intolerabili ac caligine immensa plena sunt.“ Bartusik, Grzegorz; Biskup, Radosław; Morawiec, Jakub, ritstj. (2022). Adam of Bremen's Gesta Hammaburgensis Ecclesiae Pontificum: Origins, Reception and Significance. Studies in Medieval History and Culture. London: Routledge. doi:10.4324/9781003223030. ISBN 9781003223030.
- ↑ Ari fróði Þorgilsson, Íslendingabók, útgáfa Guðna Jónssonar
- ↑ Chiesa, Paolo (2021-05-04)."Marckalada: The First Mention of America in the Mediterranean Area (c. 1340)". Terrae Incognitae. 53 (2): 88–106. doi:10.1080/00822884.2021.1943792. hdl:2434/860960. ISSN 0082-2884. S2CID 236457428.
- ↑ Fiamam, 2017
- ↑ [ https://canadianmysteries.ca/sites/vinland/othermysteries/maps/indexen.html Where is Vinland?]
- ↑ [ https://permalink.kb.dk/permalink/2006/manus/678/eng/ Biørn Jonsen paa Skarsaa: Beskrivelse af Grønland og Skálholt-kortet]
- ↑ Livingston, Michael (March 2004). "More Vinland maps and texts". Journal of Medieval History. 30 (1): 25 -44. doi:10.1016/j.jmedhist.2003.12.001. S2CID 159749720.
- ↑ Páll Bergþórsson, Vínlandsgátan[óvirkur tengill], Mál og menning, Reykjavík, 1997. ISBN 9979315849
- ↑ „AM 736 I 4to“. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. mars 2026. Sótt 11 maí 2026.
- ↑ Jónas Kristjánsson (1980) Annálar og íslendingasögur Gripla, 1. Hefti (01.01.1980), bls. 2956
- ↑ Erkibiskpubdæmi Norðurlanda var í Lundi frá 1104 fram til 1153 þegar það var flutt til Niðaróss
- ↑ Steinunn Kristjánsdóttir (2021). Medieval Monasticism in Iceland and Norse Greenland, tímaritið Religions 2021, 12(6), 374. https://doi.org/10.3390/rel12060374
- ↑ Þa kom ok skip af Grænlandi minna at vexti enn sma Islandz fór. þat kom i Straum fiórð inn ytra. þat var akkeris laust. þar voru á .xvij. menn ok hófðu farit til Marklandz enn siðan vordit hingat hafreka. Skálholts-Annálar
- ↑ Brandon M. Bender (21. oktober 2025). «The Disappearance of Norse Greenland». World History Encyclopedia, www.worldhistory.org.
- ↑ Kollvarpar fyrri hugmyndum um landnám Grænlands. Sjómannadagsblaðið, 30. maí 1965 — 28. árgangur.
- ↑ https://www.researchgate.net/publication/234802722_Falling_into_Vinland_Newfoundland_Hunting_Pitfalls_at_the_Edge_of_the_Viking_World Falling into Vínland: Newfoundland Hunting Pitfalls at the Edge of the Viking World
- ↑ Birgitta Wallace, (1991). "L'Anse aux Meadows: gateway to Vinland". In Bigelow, Gerald F. (ed.). The Norse of the North Atlantic. Acta Archaeologica vol. 61. Copenhagen: Munksgaard. bls. 166–198. OCLC 31367739.
- ↑ Páll Bergþórsson (1997). Vínlandsgátan[óvirkur tengill], Mál og menning, ISBN 9979315849
- ↑ William A. Munn (1914), Location of Helluland, Markland, and Vinland from the Icelandic Sagas, Gazette Print
- ↑ Kristján Eldjárn (2012), Vínlandsdagbók. Útgefandi: Forlagið, ISBN: 9789979535775
- ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 140
- ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 134
- ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 142
- ↑ Páll Bergþórsson (1997). Bls. 169
- ↑ Kuitems, Margot; Wallace, Birgitta L.; Lindsay, Charles; Scifo, Andrea; Doeve, Petra; Jenkins, Kevin; Lindauer, Susanne; Erdil, Pınar; Ledger, Paul M. (20. oktober 2021).[ https://www.nature.com/articles/s41586-021-03972-8 «Evidence for European presence in the Americas in ad 1021».] Nature: 1–4. ISSN 1476-4687. doi:10.1038/s41586-021-03972-8. «However, it has thus far not been possible to determine when this activity took place3,4,5. Here we provide evidence that the Vikings were present in Newfoundland in AD 1021. We overcome the imprecision of previous age estimates by making use of the cosmic-ray-induced upsurge in atmospheric radiocarbon concentrations in AD 993 (ref. 6). Our new date lays down a marker for European cognisance of the Americas, and represents the first known point at which humans encircled the globe.»
- ↑ Brian Handwerk, New Dating Method Shows Vikings Occupied Newfoundland in 1021 C.E. Smithsonian Magazine, October 20, 2021
- ↑ P. M. Ledger, L. Girdland-Flinkc, V. Forbes. (2019). New horizons at L’Anse aux Meadows. Smithsonian Institution
- ↑ Birgitta Wallace, The Norse in Newfoundland:L'Anse aux Meadows and Vinland. Newfoundland and Labrador Studies. Volume 19, Number 1, Spring 2003, bls. 5–43
- ↑ [ https://www.canada.ca/en/environment-climate-change/services/ice-forecasts-observations/latest-conditions/climatology.html Geymt 24 janúar 2026 í Wayback Machine Canadian Ice Service Ice Climatology]
- ↑ COSEWIC assessment and status report on the butternut, Juglans cinerea, in Canada
- ↑ Birgitta Wallace, "L’Anse aux Meadows, Leif Eriksson's Home in Vinland", Norse Greenland: Selected Papers from the Hvalsey Conference 2008 Journal of the North Atlantic, 2009, bls. 114-125. DOI:10.3721/037.002.s212
- ↑ Vitis riparia - Database of Vascular Plants of Canada (VASCAN)
- ↑ Frakes, Jerold C., "Vikings, Vínland and the Discourse of Eurocentrism." The Journal of English and Germanic Philology 100, no. 2 (April, 2001):197
Ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]- Birgitta Wallace (1990): „Norrænar fornminjar í L´anse aux Meadows.“ Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1989. Ólafur Halldórsson þýddi.
- Gunnar Karlsson. „Hvor var á undan að finna Ameríku, Leifur heppni eða Bjarni Herjólfsson?“ Vísindavefurinn, 19. febrúar 2000.
- Orri Vésteinsson. „Hafa fundist fornleifar á Grænlandi og Vínlandi eftir norræna víkinga?“ Vísindavefurinn, 22. nóvember 2021.
- Orri Vésteinsson. „Hvar voru skip víkinga sem sigldu til Vesturheims smíðuð?“ Vísindavefurinn, 8. september 2021.
- Vínland Þorfinns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur; grein í Lesbók Morgunblaðsins 2001
- Halldór Hermannsson, Vínlandsferðirnar,Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 1. tölublað (01.04.1919)