Fara í innihald

L'Anse aux Meadows

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þorpið L’Anse-aux-Meadows til vinstri og norrænu búðirnar til hægri
Nýfundnaland, rauði depillinn sýnir staðsetningu L'Anse aux Meadows

L'Anse aux Meadows er á nyrsta tanga hins mikla norðurskaga Nýfundnalands, í fylkinu Nýfundnaland og Labrador í Kanada, um einum kílómetra sunnan við samnefnt lítið þorp og um 20 km frá bænum St. Anthony. Árið 1960 fundu norsku fornleifafræðingarnir Helge Ingstad og Anne Stine Ingstad fornminjar á L'Anse aux Meadows frá norrænni menningu.

Kolefnisaldursgreiningar benda til að minjarnar séu frá tímabilinu 990 til 1050 e.Kr. [1][2] og aldursgreining árshringja að tré sem notuð voru í byggingarnar var höggvið 1021,[3][4] og það gerir L'Anse aux Meadows án efa að elsta stað þar sem Evrópubúar komu til landa vestan við Grænland. Fornleifarnar og tímasettningin koma nokkuð heim og saman við frásögurnar í tveimum Íslendingasögum: Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu sem stundum eru nefndar saman sem Vínlandssögurnar. Í þessum sögum er sagt frá ferðum norrænna manna frá Grænlandi til landa sem þeir nefndu Helluland, Markland og Vínland.

Fornleifarnar benda til þess að byggðin hafi þjónað fremur sem bækistöð fyrir verðmætaöflun sunnar heldur en tilraun til landnáms. [5] Svæðið nær yfir 31 ferkílómetra, bæði af landi og sjó, þar eru leifar átta bygginga úr torfi yfir viðargrind. Þar hafa fundist yfir 800 norrænir munir,[6] þar á meðal hlutir úr bronsi, beinum og steini og gjallmolar og viðarkolaleifar benda greinilegar til rauðajárnframleiðslu.[7] Staðurinn var útnefndur þjóðminjastaður Kanada árið 1968 og á heimsminjaskrá UNESCO árið 1978.

Frumbyggjar

[breyta | breyta frumkóða]

Áður en Norðmenn komu til Nýfundnalands eru frumbyggjaþjóða á L'Anse aux Meadows svæðinu fyrir komu norrænna manna þangað, elstu minjarnar eru um 6.000 ára gamlar. Hins vegar virðist þær ekki hafa búið þar samtímis norrænu byggðinni. Mest áberandi minjar um fyrri byggð eru frá svo nefndu Dorset-fólki, sem bjuggu á svæðinu um 300 árum á undan norrænu byggðinni. Samkvæmt kolefnisaldursgreiningum hefur fyrsta þjóðin, sem kölluð er Maritime Archaic á ensku, búið frá 4000 f.Kr, þangað til um 1000 f.Kr. Þetta fólk notaði trébáta og lifðu aðallega á veiðum á sjávarspendýrum. [8] Frá 1000 f.Kr. þangað til um 800 – 850 mismunandi Dorset-hópar.[9] Eftir norrænu byggðina um 1200 og fram til um það bil 1500 e.Kr. bjuggu þar Beótúk frumbyggjar.[10]

Norræn byggð

[breyta | breyta frumkóða]

Fornminjar í L'Anse aux Meadows voru grafnar upp undir stjórn Helge og Anne Stine Ingstad á árunum 1961-1968, meðal annars með þátttöku Kristjáns Eldjárns 1962.[11]

Norrænar tilgátubyggingar á L’Anse-aux-Meadows, á Nýfundnalandi.
Kort af norræna svæðinu á L'Anse aux Meadows

Norrænar búðatóftir:
A - Skáli, B - Hús, C - Kofi, D – Skáli, E - Kofi, F – Meginskáli, G - Kofi, J - Smiðja

Nýbyggingar:
1 - Tilgátubyggingar A, B, C, og J

Nú er svæðið að mestu leyti opið graslendi en fyrir 1000 árum var þar skógur sem hefur verið hentugur til að höggva tré til bátasmíði, húsabyggingar og vinnslu á rauðajárni.[12] Tóftir átta bygginga (merktar frá A–J á kortinu) fundust. Fornleifafræðingarnir rannsökuðu leifar átta norrænna húsa og eina kolagröf, fyrir utan ýmiskonar minjar frumbyggja.[13] Þrjú húsanna voru líklega íveruhús með langeldum á miðju gólfi, hin eru talin vera vöruskemmur eða verkstæði. Öll húsin voru byggð úr torfi með timburgrind að innan, og var torf bæði í þaki og veggjum. Bæði hafa verið notaðir strengir, hnausar og klömbrur í byggingarnar. Flestir veggir voru tvíhlaðnir með sandi og möl sem fyllingu og styrktir með strengjatorfi sent var lagt þversum, en ytri og innri hleðsla úr hnausum og strengjum. Þetta er sama byggingarlag og tíðkaðist á íslandi og Grænlandi.[14] Stærsti skálinn (F) var 28,8 m × 15,6 m, og var skipt í nokkur rými.[15] Þrjár minni byggingar (B, C, G) gætu verið vöruskemmur eða verkstæði. Eitt af þeim var smiðja og rauðablásturshús og viðarkolagröf í grennd, samskonar og fundist hafa í Noregi og á Íslandi.[16] (bygging J), annað bygging fyrir smíðar (bygging D), þar fannst meðal annars sundurklipptur hnoðsaumur, tréspónn og aflóga smíðisgripir. Þar fyrir utan voru fjögur lítil naust grafin neðan við fjörukambin. Hins vegar hafa engar vísbendingar um fjós eða önnur gripahús eða búfé fundist í L'Anse aux Meadows.

Þrívíddarmódel af norrænu byggðinni í L'Anse aux Meadows

Mikið af minjum hefur fundist en heimilisáhöld og persónulegir munir eru fáir og nær eingöngu smáhlutir sem eigendur gátu auðveldlega glutrað niður. Meðal þess var lítil hringnæla sem var notuð til að næla saman föt, einnig snældusnúður úr tálgusteini og lítið nálabrýni úr kvarsi.[17]

Engin leið að vita hversu margt fólk var í búðunum á hverjum tíma, þó að íveruhúsin gætu hýst 30 til 160 manns.[18] Heildaríbúafjöldi Grænlands á þeim tíma var um 2.500 til 3000, sem þýðir að L'Anse aux Meadows-svæðið var minna en 10 prósent af norrænu byggðunum á Grænlandi.[19]

Ekki er hægt að ákveða með neinni nákvæmni hvað þessi hús voru lengi notuð til búsetu en það hefur sennilega verið um fá ár að ræða, eða í mesta lagi fáeina áratugi fremur en aldir. Allar líkur eru á að byggðin hafi ekki staðið lengi því að öskuhaugar eru ekki miklir, í mesta lagi nokkur ár, og engin merki eru um grafreiti.[20] Árið 2021 sýndu rannsóknir að tré som notað var við byggingarnar hafi verið fellt ár 1021, það sýnir hins vegar ekki hvenær norrænir menn komu þangað eða eða hversu lengi þeir voru þar. Þessi aldursgreiningin byggist á kolefnisaldursgreiningu á viðarstykkjum sem hafa verið skornir með málmverkfærum sem frumbyggjar á svæðinu notuðu ekki. [21][22]

Samkvæmt rannsókn frá árinu 2019, sem var birt í vísindatímaritinu PNAS, er mögulegt að norræn umsvif hafi verið í L'Anse aux Meadows í allt að heila öld. [23]

Flestir fræðimenn eru nú á þeirri skoðun að L’Anse aux Meadows hafi ekki verið Vínland. Ekki síst vegna þess að þar er ekkert að finna af þeim gæðum Vínlands sem sögurnar segja frá, svo sem vínberjum eða kjörviði. Hins vegar telja þeir að L’Anse aux Meadows hafi verið bækistöð þegar komið var frá Grænlandi því þar opnaðist leiðin suður á bóginn að suðurströnd St. Lawrenceflóa, til hins eiginlega Vínlands og mögulega enn lengra. Einnig bækistöð þegar aftur var haldið til Grænlands. Birgitta Wallace taldi að Straumfjörður og Leifsbúðir sem nefndir í Eiríkssögu rauða og Grænlendingasögu væru L‘Anse aux Meadows.[24]

Í bækistöðunum hafa skipshafnirnar notað búðirnar til hvíldar og til að gera við skipin. Einnig gætu þeir haft þar vetursetu til að geta haldið áfram næsta sumar að sækja vörur frá hinu eiginlega Vínlandi eða bíða þess að ísa leysi við Nýfundnaland og Larbrador. Siglingaleiðin frá Leifsbúðum til Grænlands er mun styttri en frá Vínlandi sjálfu ef það hefur verið langt í suður. Norður og vestur Labradorhaf, allt suður að norðhluta Nýfundnalands er þakið hafís frá október byrjun fram til loka maí eða byrjun júní.[25]

Lauf smjörhnetutrés og hnetur

Þótt almennt sé nú talið að L'Anse aux Meadows hafi verið bækistöð norrænna manna í landaleit og í leit að timbri og öðrum verðmætum en ekki tilraun til landnáms, þá er enn umdeilt hversu langt suður þeir fóru. Í Vínlandssögunum er sagt að vínber hafi fundist á Vínlandi og það bendir til þess að þeir hafi að minnsta kosti farið til suðurstrandar St. Lawrence-fljóts og fundið bæði villtan vínvið og hnetutré. Þrjár smjörhnetur (Juglans cinerea) fundust við L'Anse aux Meadows, en þessi hnetutegund vex aðeins sunnan við St. Lawrence-fljót.[26][27]

Lækjavínviðarber

Vínberin sem sagt er að hafi fundist í Vínlandi gætu verið lækjavínviður (Vitis riparia), tegund af villtum þrúgum sem vaxa á trjám en en hafa aldrei vaxið á Nýfundnalandi. Grænlendingarnir hafa fundið tré umvafin lækjavínviði sunnan við L'Anse aux Meadows og kallað þau vínvið.[28]

L'Anse Aux Meadows hefur að öllum líkindum verið lítil og skammlíf bækistöð, fyrst og fremst notuð við skógarhögg og timburflutninga og einnig skipaviðhalds, frekar en til landnáms eins og á Grænlandi.[29]

Sjá einnig

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvitnanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Nydal, R. (1989). A critical review of radiocarbon dating of a Norse settlement at L'Anse aux Meadows, Newfoundland Canada. Geymt 5 júní 2024 í Wayback Machine Radiocarbon, 31(3), 976-985.With an assumed total systematic error of 30 ± 20 years, as a mean for various tree rings, the calibrated age range of L'Anse aux Meadows is AD 975–1020. This agrees well with the assumed historical age of ca AD 1000, a result which has also been recently corroborated by high-precision accelerator dating at the University of Toronto.
  2. ↑ Cordell, Linda S.; Lightfoot, Kent; McManamon, Francis; Milner, George (2009). "L'Anse aux Meadows National Historic Site". Archaeology in America: An Encyclopedia. ABC-CLIO. bls. 82. ISBN 978-0-313-02189-3.
  3. ↑ Ledger, Paul M.; Girdland-Flink, Linus; Forbes, Véronique (15 July 2019). "New horizons at L'Anse aux Meadows". Proceedings of the National Academy of Sciences. 116 (31): 15341–15343. Bibcode:2019PNAS..11615341L. doi:10.1073/PNAS.1907986116. eISSN 1091-6490. ISSN 0027-8424. PMC 6681721. PMID 31308231. Modeling results were remarkably consistent, and model A suggests Norse occupation began Cal AD 910–1030..... A weighted mean of twig dates—notwithstanding issues associated with combination of 14C ages from multiple individuals—provided a result of AD 986–1022
  4. ↑ Kuitems, Margot; Wallace, Birgitta L.; Lindsay, Charles; Scifo, Andrea; Doeve, Petra; Jenkins, Kevin; Lindauer, Susanne; Erdil, Pınar; Ledger, Paul M.; Forbes, Véronique; Vermeeren, Caroline (20 October 2021). "Evidence for European presence in the Americas in AD 1021". Nature. 601 (7893): 388–391. Bibcode:2022Natur.601..388K. doi:10.1038/s41586-021-03972-8. ISSN 1476-4687. PMC 8770119. PMID 34671168. S2CID 239051036. Our result of AD 1021 for the cutting year constitutes the only secure calendar date for the presence of Europeans across the Atlantic before the voyages of Columbus. Moreover, the fact that our results, on three different trees, converge on the same year is notable and unexpected. This coincidence strongly suggests Norse activity at L'Anse aux Meadows in AD 1021. In addition, our research demonstrates the potential of the AD 993 anomaly in atmospheric 14C concentrations for pinpointing the ages of past migrations and cultural interactions.
  5. ↑ Páll Bergþórsson (1997). Vínlandsgátan[óvirkur tengill], Mál og menning, ISBN 9979315849
  6. ↑ Sarolta Anna Takacs; Eric H. Cline (17 July 2015). The Ancient World, Volumes 1–5. Routledge. bls. 272–. ISBN 978-1-317-45839-5.
  7. ↑ Kirsten Wolf (2004). Daily Life of the Vikings. Greenwood Publishing Group. bls. 139–. ISBN 978-0-313-32269-3. OCLC 253909682.
  8. ↑ James A. Tuck (1998). Maritime Archaic tradition. Heritage The Newfoundland and Labrador
  9. ↑ Ralph T. Pastore (1998). Palaeo-Eskimo Peoples. Heritage The Newfoundland and Labrador
  10. ↑ Ralph T. Pastore (1997). The Beothuk Geymt 23 ágúst 2026 í Wayback Machine. Heritage The Newfoundland and Labrador
  11. ↑ Kristján Eldjárn (2012), Vínlandsdagbók. Útgefandi: Forlagið, ISBN: 9789979535775
  12. ↑  : The Excavation of a Norse Settlement in L'Anse Aux Meadows, Newfoundland. Breakwater Books. ISBN 978-1-55081-158-2.
  13. ↑ Birgitta Wallace (1990): „Norrænar fornminjar í L´anse aux Meadows.“ Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1989. Ólafur Halldórsson þýddi.
  14. ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 134
  15. ↑ Wallace, Birgitta (2021). "L'Anse aux Meadows". The Canadian Encyclopedia. Historica Canada.
  16. ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 140
  17. ↑ Birgitta Wallace, (1990) bls. 142
  18. ↑ Kolodny, Annette (2012). In Search of First Contact: The Vikings of Vinland, the Peoples of the Dawnland, and the Anglo-American Anxiety of Discovery. Duke University Press. bls. 95. ISBN 978-0-8223-5286-0.
  19. ↑ Richards, J. D. (2005). The Vikings: A Very Short Introduction. Oxford University Press. Bls. 112. doi:10.1093/actrade/9780192806079.003.0011. ISBN 978-0-19-280607-9.
  20. ↑ Páll Bergþórsson (1997). Bls. 169
  21. ↑ Kuitems, Margot; Wallace, Birgitta L.; Lindsay, Charles; Scifo, Andrea; Doeve, Petra; Jenkins, Kevin; Lindauer, Susanne; Erdil, Pınar; Ledger, Paul M. (20. oktober 2021).[ https://www.nature.com/articles/s41586-021-03972-8 «Evidence for European presence in the Americas in ad 1021».] Nature: 1–4. ISSN 1476-4687. doi:10.1038/s41586-021-03972-8. «However, it has thus far not been possible to determine when this activity took place. Here we provide evidence that the Vikings were present in Newfoundland in AD 1021. We overcome the imprecision of previous age estimates by making use of the cosmic-ray-induced upsurge in atmospheric radiocarbon concentrations in AD 993 (ref. 6). Our new date lays down a marker for European cognisance of the Americas, and represents the first known point at which humans encircled the globe.»
  22. ↑ Brian Handwerk, New Dating Method Shows Vikings Occupied Newfoundland in 1021 C.E. Smithsonian Magazine, October 20, 2021
  23. ↑ Forbes, Véronique; Girdland-Flink, Linus; Ledger, Paul M. (10 July 2019). "New horizons at L'Anse aux Meadows". Proceedings of the National Academy of Sciences. 116 (31): 15341 15343. Bibcode:2019PNAS..11615341L. doi:10.1073/pnas.1907986116. ISSN 0027-8424. PMC 6681721. PMID 31308231.
  24. ↑ Birgitta Wallace, The Norse in Newfoundland:L'Anse aux Meadows and Vinland. Newfoundland and Labrador Studies. Volume 19, Number 1, Spring 2003, bls. 5–43
  25. ↑ [ https://www.canada.ca/en/environment-climate-change/services/ice-forecasts-observations/latest-conditions/climatology.html Geymt 24 janúar 2026 í Wayback Machine Canadian Ice Service Ice Climatology]
  26. ↑ COSEWIC assessment and status report on the butternut, Juglans cinerea, in Canada
  27. ↑ Birgitta Wallace, "L’Anse aux Meadows, Leif Eriksson's Home in Vinland", Norse Greenland: Selected Papers from the Hvalsey Conference 2008 Journal of the North Atlantic, 2009, bls. 114-125. DOI:10.3721/037.002.s212
  28. ↑ Vitis riparia - Database of Vascular Plants of Canada (VASCAN)
  29. ↑ Frakes, Jerold C., "Vikings, Vínland and the Discourse of Eurocentrism." The Journal of English and Germanic Philology 100, no. 2 (April, 2001):197