Tökuorð
Útlit
(Endurbeint frá Tökusagnir)
Tökuorð er orð, sem fengið er að láni úr öðru tungumáli[1] en hefur lagað sig að hljóð- og beygingarkerfi viðtökumálsins. Nær öll íslensk orð sem byrja á bókstafnum p eru upprunalega tökuorð enda urðu órödduð lokhljóð (eins og p) í frumindóevrópsku að önghljóðum (eins og f) í germönskum málum samkvæmt lögmáli Grimms.
Dæmi um tökuorð
[breyta | breyta frumkóða]- Altari (latínu) - altus („hár“)
- Banani
- Bíll[1] (dönsku) - bil[2]
- Djákni
- Edrú - (dönsku) ædru[3]
- Jeppi
- Kaffi
- Kirkja
- Kústur
- Metri (fr. metre)
- Prestur
- Sjoppa[1] (e. shop)
- Tóbak
- Vaskur
- Viskastykki
Sagnbeyging tökusagna
[breyta | breyta frumkóða]Flestar tökusagnir raða sér í flokk veikbeygðra sagna enda er veika sagnbeygingin einfaldari en sú sterka.
Dæmi
[breyta | breyta frumkóða]- að bóna
- að fríka
- að meika
- að fíla
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- „„Hver er munurinn á slettum, slangri og tökuorðum?"“. Sótt 2. maí 2007.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 Hugtakaskýringar - Málfræði
- ↑ Íslenska- í senn forn of ný Geymt 23 september 2009 í Wayback Machine bls. 10
- ↑ „Hvaðan kemur orðið edrú?“. Vísindavefurinn.
- ↑ Zuckermann, G. (2003),Language Contact and Lexical Enrichment in Israeli Hebrew. Palgrave Macmillan. ISBN 9781403917232 / ISBN 9781403938695