Svali
Svali er ávaxtadrykkur sem hlaut miklar vinsældir á Íslandi. Svali var fáanlegur með appelsínu–, epla–, jarðarberja–, sólberja–, sítrónu- og perubragði. Svali var framleiddur af Vífilfelli.
Svali kom fyrst á markað í pelafernum árið 1982. Drykkurinn varð strax mjög vinsæll, appelsínusvali kom fyrstur og síðan bættust við eplasvali og sítrónusvali. Útflutningur hófst á Svala til Bretlands 1986, þar með var í fyrsta skipti fluttur út íslenskur drykkur. Margir þekktir skemmtikraftar hafa komið við sögu í auglýsingum á Svala hér heima og erlendis. Má þar m. a. nefna Jón Pál kraftakarl og Hófí fegurðardrottningu sem unnu að sölu á Svala erlendis, en heima auglýstu leikararnir Halli og Laddi Svalann ásamt söngkonunni Siggu Beinteins. Svalalagið er löngu orðið þekkt, en það samdi Sverrir Stormsker. Árið 1995 var Svalinn gerður hollari, bætt í hann meira af safa og notaður sykur sem fer betur með tennur en venjulegur sykur. Í öllum Svala er 35% safi og meira en dagskammtur af C-vítamíni fyrir börn. Til voru alls sex tegundir af svala, appelsínu, epla, sykurskertur epla og appelsínu, sítrónu og jarðarberja.
Þann 9. nóvember 2022 var tilkynnt að það yrði hætt að framleiða og selja Svala við árslok 2022.[1]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Bjarki Sigurðsson. (2022, 9. nóvember). Hætta framleiðslu á Svala. Vísir. https://www.visir.is/g/20222336664d/haetta-fram-leidslu-a-svala