Sumareik
Sumareik Quercus robur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Laufblöð og akarn (takið eftir löngum stilk akarns).
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Quercus robur L. | ||||||||||||||||
Quercus robur dreifing
|
Sumareik (fræðiheiti Quercus robur) er eikartegund sem upprunnin er í Evrópu, Kákasus og í Anatólíu. Latneska heitið robur þýðir harður viður. Sumareik er náskylt annarri eikartegund vetrareik (Quercus petraea) og vex á sömu svæðum. Sumareik þekkist frá vetrareik á því að laufin hafa mjög stuttan stilk 3-8 mm langan. Einnig er akarn sumareikur öðruvísi en akarn vetrareikur. Sumareik og vetrareik blandast oft og er blendingur þeirra þekktur sem Quercus × rosacea.
Sumareik er stórt lauffallandi tré með gildan stofn og verður ummál stofnsins frá 4 m til 12 m. Stærsta tréð í Bretlandi er The Majesty Oak með ummál 12,2 m og fræg eik, Kaive eikin í Lettlandi er 10,2 m. Laufblöð sumareikur eru með mjög stuttum stilk og 7 -14 sm löng. Tréð blómgast á miðju vori og ávöxturinn akarnið þroskast um haustið. Akarnin eru 2 - 2,5 sm löng og eru á 3-7 sm akarnstilki með einu til fjórum akörnum á hverjum.
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Lítil reynsla er af tegundinni á Íslandi en finna má nokkurra metra há tré, það hæsta á níunda metra [1]. Hægur vöxtur og haustkal eru helstu hindranir. [2].
Í tilefni 50 ára afmælis rannsóknarstöðvarinnar að Mógilsá var gróðursettur eikarskógur þar í nágrenni sumarið 2017.[3]
-
Forn eikartré í Wistman skógi í Devon í Englandi Wood
-
Akarn
-
Gamalt eikartré í Baginton, Englandi
-
Eik spírar í gleríláti
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ræktar þú eik á Íslandi? Garðurinn, sótt 29. okt. 2022
- ↑ Eik Skógræktin. Sótt 5.9 2021
- ↑ Fyrsti eikarskógurinn á Íslandi: Eikur af þýskum uppruna gróðursettar á afmælishátíð Mógilsár á sunnudag[óvirkur tengill] Skogur.is, skoðað 3. sept, 2017.