Malvik (sveitarfélag)
Útlit
Malvik er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 14.425 íbúar (2022).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er þéttbýlið Hommelvik. Til sveitarfélagsins teljast einnig þéttbýlin Vikhammar, Saksvik og Hundhammaren.
Sveitarfélagið á landamæri að sveitarfélögunum Stjørdal í austri, Selbu í suðri og Þrándheimi í vestri.