Flórgoði
Útlit
(Endurbeint frá Sefönd)
Flórgoði | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Flórgoði á fengitíma
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Podiceps auritus (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Colymbus auritus |
Flórgoði (eða sefönd og stöku sinnum flóðskítur) (fræðiheiti Podiceps auritus) er fugl af goðaætt, og eini fuglinn af goðaætt sem verpir á Íslandi. Flórgoðinn er sjaldgæfur varpfugl á Íslandi, en algengastur við Mývatn og þar í grennd. Ekki má rugla honum saman við frænda sinn, sefgoðann.
Fullorðnu fuglarnir nærast helst á hornsílum, en ungarnir éta líka vatnaskordýr og krabbadýr. Flórgoðinn er óvenjulegur að því leyti að hann étur töluvert af sínum eigin fjöðrum, trúlega til að eiga auðveldara með að melta fæðuna.
Varpstöðvar flórgoðans eru við tjarnir og vötn á láglendi og flýtur hreiðrið á vatnsborðinu innan um sefgróðurinn þar sem hann gerir sér dyngju úr mosa og stráum. Rétt eins og blesöndin.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ BirdLife International (2004). „Podiceps auritus“. Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. 2004. Sótt 12. maí 2006. Database entry includes justification for why this species is of least concern
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Flórgoði.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Podiceps auritus.