Sebrahestur
Sebrahestar (einnig kallaðir sebradýr) eru hófdýr og grasbítar af hestaætt. Helsta einkenni þeirra eru ljósar og dökkar rendur sem þekja allan skrokkinn. Sebrahestar eru algengastir um miðbik Afríku og í henni austanverðri og sunnanverðri, einkum á gresjum, en sumir sebrahestar lifa þó í fjalllendi.
Tegundir sebrahesta
[breyta | breyta frumkóða]- Nú finnast þrjár tegundir af sebrahestum:
Greifasebri (Equus grevyi)
[breyta | breyta frumkóða]Greifasebrar eru stærstu sebrahestarnir, nálægt 150 sentimetrar á herðakamb og 400 kíló á þyngd. Þeir finnast einkum í Kenía. Þeir þola vel þurrt loftslag.[1][2][3][4]
Fjallasebri (Equus zebra)
[breyta | breyta frumkóða]Þessi tegund skiptist í tvær deilitegundir: Höfðasebri (Equus zebra zebra) er lágvaxinn og fáséður. Hartmannssebri (Equus zebra hartmanni) er stærri og nokkru algengari.[5][6][7][8]
Sléttusebri (Equus burchelli)
[breyta | breyta frumkóða]Sléttusebrinn heldur sig á sléttum í austanverðri Afríku, frá Súdan í norðri og allt til Suður-Afríku. Hann er á stærð við smávaxinn hest. Ljón veiða oft sléttusebra.[9][10][11][12]
- Fáeinar aðrar tegundir af sebrahestum eru útdauðar. Mest er vitað um þessa:
Kvaggi (Equus quagga)
[breyta | breyta frumkóða]Kvaggar voru nokkuð frábrugðnir öðrum sebrahestum og útbreiddir um alla Suður-Afríku. Á ofanverðri 19. öld liðu þeir undir lok, mest vegna ofveiði. Reynt hefur verið með kynbótum að endurgera þetta dýr, en árangur er umdeildur.[13][14][15]
Rendurnar á sebrahestum
[breyta | breyta frumkóða]Því er haldið fram, að engir tveir sebrahestar hafi nákvæmlega eins rendur. Þær hafa orðið mörgum umhugsunarefni.[16][17][18][19] Þrjár kenningar hafa einkum verið settar fram um gagnsemi þess fyrir sebrahesta að hafa rendurnar:
- Þær geri rándýrum erfiðara að sjá bráðina.
- Þær gegni félagslegu hlutverki og auðveldi þeim að þekkja einstök dýr í hópnum.
- Þær rugli hættulegar mýflugur, svo að þær stingi ekki.
Ýmislegt
[breyta | breyta frumkóða]- Sebrahestur getur náð 55 kílómetra hraða á klukkustund, þegar hann sprettir úr spori. Hann þykir þrekmikill og úthaldsgóður.
- Ekki er útilokað að temja sebrahesta, en fáum hefur tekist það, því að þeir eru að eðlisfari styggir og bregðast á svipstundu við öllu áreiti.[20]
- Sebrahestur og hryssa af venjulegu hestakyni geta átt afkvæmi saman. Það geta sebrahestur og asna einnig gert (sebraasni). Hvort tveggja er mjög óalgengt úti í náttúrunni en getur gerst í dýragörðum eða með beinni ræktun. Slíkir blendingar eru viðráðanlegri til notkunar en sebrahestar.[21]
- Sebrahestar í dýragörðum geta orðið fertugir að aldri.
- Sebrahestar eiga sess í listsköpun.[22]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hollingshead, Alexis J. @ University of Michigan Museum of Zoology: Equus grevyi. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Myndir af greifasebrum @ Wikimedia Commons. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Equus grevyi @ Wikispecies. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Wilson & Reeder's Mammal Species of the World: Equus grevyi Geymt 3 júní 2010 í Wayback Machine. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Walker, Martha @ University of Michigan Museum of Zoology: Equus zebra. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Myndir af fjallasebrum @ Wikimedia Commons. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Equus zebra @ Wikispecies. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Wilson & Reeder's Mammal Species of the World: Equus zebra Geymt 22 maí 2011 í Wayback Machine. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Colvin & Nihranz @ University of Michigan Museum of Zoology: Equus burchellii. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Delk, Katie @ Davidson College: Plains Zebra – Equus Burchelli. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Thaker M, Vanak AT, Owen CR, Ogden MB, Slotow R, 2010 Group Dynamics of Zebra and Wildebeest in a Woodland Savanna: Effects of Predation Risk and Habitat Density. PLoS ONE 5(9): e12758. doi:10.1371/journal.pone.0012758. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Wilson & Reeder's Mammal Species of the World: Equus burchelli Geymt 3 júní 2010 í Wayback Machine. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Rodriguez, Debra L. @ University of Michigan Museum of Zoology: Equus quagga. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Equus quagga @ Wikispecies. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Wilson & Reeder's Mammal Species of the World: Equus quagga Geymt 3 júní 2010 í Wayback Machine. Skoðað 21. október 2010.
- ↑ Das, Jayatri @ Howard Hughes Medical Institute: What Is the Molecular Mechanism for Stripes in Zebras? Geymt 14 apríl 2013 í Wayback Machine. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Illustreret Videnskab IV nr. 4/2001 s. 9: Hvorfor har zebraen striber?. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Jón Már Halldórsson: „Af hverju eru sebrahestar og tígrisdýr röndótt?“. Vísindavefurinn 5.3.2002[óvirkur tengill]. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Páll Hersteinsson: „Hvort eru sebrahestar hvítir með svörtum röndum eða svartir með hvítum röndum?“. Vísindavefurinn 25.2.2000[óvirkur tengill]. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Jón Már Halldórsson: „Af hverju er ekki hægt að temja sebrahesta?“. Vísindavefurinn 2.9.2005[óvirkur tengill]. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Illustreret Videnskab IV nr. 7/2006 s. 10: Kan en hest og en zebra få et føl sammen?. Skoðað 20. október 2010.
- ↑ Málverk eftir Luis Paret y Alcazár í Museo del Prado, Madrid @ Web Gallery of Art. Skoðað 22. október 2010.
Heimildir, ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]- Animal Planet: Growing up Zebra. Skoðað 20. október 2010.
- Jón Már Halldórsson: „Getið þið sagt mér allt um sebrahesta?“. Vísindavefurinn 19.1.2007[óvirkur tengill]. Skoðað 20. október 2010.
- Kantner, Michael @ Caltech: Herds of Information About Zebras Geymt 16 nóvember 2010 í Wayback Machine. Skoðað 20. október 2010.
- Nature: Horse Tigers. Skoðað 20. október 2010.
- Out to Africa with Ellen and Paul: Zebra Geymt 20 október 2014 í Wayback Machine. Skoðað 20. október 2010.
- Terra Nova: Le Zèbre Geymt 19 apríl 2010 í Wayback Machine. Skoðað 20. október 2010.
- Zebras in Etosha @ YouTube (piroman60, 2006). Skoðað 20. október 2010.