Sandsúlungur
Sandsúlungur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Suillus variegatus (Sw.) Kuntze 1898 | ||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||
Boletus variegatus Sw. 1810 |
Sandsúlungur (fræðiheiti: Suillus variegatus) er ætur pípusveppur sem myndar svepprót með furutrjám. Stafurinn er fremur þykkur og verður ljósblár ef hann er skorinn. Hatturinn verður 6-13 sm í þvermál, gulur og loðinn en verður slímugur ef hann blotnar.
Á Íslandi hefur Sandsúlungur aðeins fundist við Rauðavatn.[1]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Helgi Hallgrímsson (2010). Sveppabókin. Skrudda. bls. 237. ISBN 978-9979-655-71-8.