Picea breweriana
Hengigreni | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Picea breweri S.Watson | ||||||||||||||
Útbreiðslusvæði Picea breweriana
| ||||||||||||||
Nærmynd af útbreiðslusvæði Picea breweriana
| ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Hengigreni (Picea breweriana), Brewers-greni eða Sorgargreni er meðalstórt, sígrænt barrtré með breiðan, keilulaga vöxt. Megingreinarnar eru fyrst láréttar, en seinna verða þær sveigðar uppávið með lóðréttum hliðargreinum.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Börkurinn er fyrst ljós rauðbrúnn með fín hár. Seinna verður hann gráleitur með ljósum blettum. Gamlar greinar og stofnar fá dökk gráfjólubláan börk með afflettum, kringlóttum plötum. Knúpparnir eru egglaga og ljósbrúnir með rauðleitri hæringu.
Barrnálarnar eru framstæðar, þunnar og flatar, djúp dökkgrænar að ofan og með tvær hvítar rendur að neðan. Karlblómin eru saman í reklum við endann á sprotunum. Kvenblómin eru dökkrauð og eru hangandi á greinum í toppi trésins. Könglarnir eru sívalir með ávalt, íhvolft hreistur (nokkurnveginn eins og hjá brúngreni), eru þeir fyrst rauðir svo ljós rauðbrúnir við þroska.
Rótarkerfið er frekar flatt og grunnstætt með kröftugum, frekar útbreiddum meginrótum. Plöntur sem eru til sölu í Danmörku eru oftast ágræddar á rót af rauðgreni.
-
Picea breweriana í garði í Belgíu.
-
Grein með hangandi smágreinum.
-
Barr og brum á árssprota.
-
Karlreklar.
-
Grein með blómum.
Útbreiðsla og búsvæði
[breyta | breyta frumkóða]Hengigreni er upprunnið frá vestanverðri Norður-Ameríku, þar sem það vex í Klamath-Siskiyou skógunum ( WWF-búsvæði) í suðvestur-Oregon og norðvestur-Kaliforníu. Þar er tegundin í 500-2.300 metra hæð í basískum jarðvegi ásamt Arctostaphylos patula , Quercus sadleriana, Calocedrus decurrens, Ceanothus prostratus, Pinus ponderosa, Pinus jeffreyi, Abies grandis, Abies concolor, Chimaphila umbellata, Cornus nuttallii og Taxus brevifolia[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Nelson, J. & Farjon, A. (2013). „Picea breweriana“. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T34049A2841277. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T34049A2841277.en. Sótt 9. janúar 2018.
- ↑ „Picea breweriana“. The Plant List. Afrit af upprunalegu geymt þann 7 febrúar 2019. Sótt 26. mars 2015.
- ↑ National Park Service: Klamath Network Geymt 17 október 2011 í Wayback Machine á ensku
Viðbótar lesning
[breyta | breyta frumkóða]- Gymnosperm Database
- US Forest Service Silvics Manual Geymt 4 september 2010 í Wayback Machine
- US Forest Service - Frank Lang's Nature Notes
- Arboretum de Villardebelle - photo of cone
- Abrams, L. 1923. Ferns to Birthworts. 1: 1–557. In L.R. Abrams (ed.) Ill. Fl. Pacific States. Stanford University Press, Stanford.
- Flora of North America Editorial Committee, e. 1993. Pteridophytes and Gymnosperms. Fl. N. Amer. 2: i–xvi, 1–475.
- Jepson, W. L. 1909. Fl. Calif. vol. 1. 578 pp. Cunningham, Curtiss & Welch, San Francisco.
- Munz, P. A. & D. D. Keck. 1959. Cal. Fl. 1–1681. University of California Press, Berkeley.