Páll S. Árdal
Útlit
Íslensk heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Páll S. Árdal |
Fædd/ur: | 27. júní 1924 á Akureyri á Íslandi |
Dáin/n: | í mars 2003 í Kingston í Ontario í Kanada |
Skóli/hefð: | Raunhyggja, náttúruhyggja |
Helstu ritverk: | Passions and Value in Hume's Treatise; Passion, Promises and Punishment; Siðferði og mannlegt eðli |
Helstu viðfangsefni: | siðfræði |
Áhrifavaldar: | David Hume |
Páll S. Árdal (27. júní 1924 – 2003) var íslenskur heimspekingur og prófessor í heimspeki. Hann var sérfræðingur um heimspeki skoska heimspekingsins Davids Hume.
Páll lauk doktorsgráðu í heimspeki frá Háskólanum í Edinborg árið 1961. Eftir það gegndi hann um tíð lektorsstöðu við sama skóla. Síðar kenndi hann heimspeki við Queen's University í Kingston í Ontario í Kanada. Rit hans Passions and Value in Hume's Treatise sem kom út árið 1966 var brautryðjendaverk um siðfræði Davids Hume.
Páll var stofnfélagi í félagasamtökunum The Hume Society, samtaka áhugafólks um heimspeki Humes. Honum var veitt heiðursdoktorsnafnbót frá Háskóla Íslands.
Afi Páls var Páll J. Árdal.
Helstu rit
[breyta | breyta frumkóða]- Passion, Promises and Punishment (1998).
- Siðferði og mannlegt eðli (1982, 2. útg. 1997).
- Passions and Value in Hume's Treatise (1966)