Orðflokkur
Útlit
Orðflokkur er ákveðin gerð af orðum, svo sem nafnorð, sagnorð, lýsingarorð, fornöfn, forsetningar, atviksorð, samtengingar og töluorð.
Orðflokkar í íslensku
[breyta | breyta frumkóða]Orðflokkur | Dæmi | Hlutverk |
---|---|---|
Nafnorð | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Að tilgreina einstaka hluti, eða flokka hluta, jafnt raunverulega sem ímyndaða. |
Sagnorð | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Að gefa til kynna aðgerð eða atburð. |
Lýsingarorð | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Að lýsa einhverjum hlut nánar. Oftast notað með nafnorði. |
Fornöfn | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Vísa til nafnorðs sem þegar hefur verið nefnt eða persónu sem er þekkt. Sum fornöfn er hægt að nota í stað nafnorða án þess að þau vísi til nafnorðs sem þegar hefur verið nefnt. |
Greinir | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Að gera nafnorð ákveðin. Greinir getur verið viðskeyttur eða settur fyrir framan nafnorð sem sér orð. |
Töluorð | Sautján stórir fuglar hoppa til hinna þriggja merku manna sem standa í garðinum. Þeir eru með tvo poka af fræjum handa fuglunum. | Gefa til kynna fjölda eða magn. |
Smáorð | ||
Forsetning | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er með fræ handa fuglinum. | Hafa áhrif á merkingu fallorðs í setningu. |
Atviksorð | Hann fór upp stigann og inn í herbergið en hún fór niður stigann og út.
Hann les mjög illa. Hún las ekki vel. |
Geta staðið með sögnum, lýsingarorðum og öðrum atviksorðum og þannig lýst þeim betur. |
Nafnháttarmerki | Stóri fuglinn er að hoppa til hins merka manns sem stendur í garðinum. Hann er að gefa öðrum fuglum fræ. | Nafnháttarmerkið er orðið „að“ á undan sagnorði í nafnhætti. Sögn í nafnhætti er án tíðar og endar oftast á „a“, þótt ýmis sagnorð endi á öðru en -a: (að abbast, að ferðast, að þvo, að sjá...). |
Samtenging | Stóri fuglinn hoppar til hins merka manns sem stendur í garðinum og er með fræ handa fuglinum. | Tengir saman einstök orð eða setningar til að mynda málsgrein. Skiptist í aðaltengingar og aukatengingar. |
Upphrópanir | Ó, hve fagur er fuglinn! – | Sýna undrun, hrifningu, hræðslu, gleði, eða reiði. |
Merkingarleg einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Nafnorð eru heiti á lifandi verum, hlutum eða hugtökum, sagnorð tákna oft það sem að gerist eða gerðist, töluorð segja til um upphæð eða fjölda o.s.frv.
Formleg einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Hér er einkum átt við ýmis beygingaratriði, t.d hvort orðið fallbeygist, tíðbeygist, bæti við sig greini o.s.frv.
Setningarleg einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Forsetningar standa alltaf með fallorði í aukafall, lýsingarorð geta staðið með nafnorðum, atviksorð standa oft með sagnorðum o.s.frv.