Mexíkóska kvennalandsliðið í knattspyrnu
Gælunafn | El Tri Femenil, La Tri | ||
---|---|---|---|
Íþróttasamband | Mexíkóska knattspyrnusambandið | ||
Álfusamband | CONCACAF | ||
Þjálfari | Pedro López | ||
Fyrirliði | Rebeca Bernal | ||
Most caps | Maribel Domínguez (116) | ||
Markahæstur | Maribel Domínguez (86) | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 29 (14. júní 2024) 21 (des. 2011) 36 (ágúst 2022; ágúst 2023) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
9-0 á móti Austurríki, 6. júlí 1970. | |||
Stærsti sigur | |||
11-0 á móti Anguilla, 9. apríl 2022 | |||
Mesta tap | |||
0-12 á móti Bandaríkjunum, 18. apríl 1991 |
Mexíkóska kvennalandsliðið í knattspyrnu (spænska: Selección Nacional de México Femenil)) er fulltrúi Mexíkó á alþjóðlegum vettvangi. Mexíkóar voru frumherjar í knattspyrnu kvenna áður en FIFA viðurkenndi slíka keppni og tók upp á arma sína. Þannig unnu Mexíkóar til verðlauna í óopinberum heimsmeistaramótum á áttunda áratugnum. Í seinni tíð hefur landsliðið staðið í skugga öflugari nágranna sinna í norðrinu, en hefur þó í þrígang keppt í úrslitakeppni HM, en aldrei náð að vinna leik.
Frumkvöðlar í knattspyrnu kvenna
[breyta | breyta frumkóða]Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA var lengi tregt til að viðurkenna knattspyrnu kvenna innan sinna vébanda og víða um lönd höfðu yfirvöld knattspyrnumála beinlínist reynt að berja niður tilraunir til slíkrar iðkunar. Á sjötta áratugnum fóru knattspyrnukonur í Argentínu og Kosta Ríka að láta á sér kræla ferðuðust víða um rómönsku ameríku. Óopinbert landslið Kosta Ríka varði hálfu ári í keppnisferð í Mexíkó árið 1963 og ýtti undir áhuga heimakvenna.
Sumarið 1970 var óopinber heimsmeistarakeppni kvenna haldin á Ítalíu með þátttöku Mexíkó og sjö evrópskra liða. Mexíkó tapaði naumlega fyrir heimakonum í undanúrslitum en sigraði því næst Englendinga í leiknum um bronsið.
Árið eftir var Mexíkó í hlutverki gestgjafa keppninnar, en velheppnaðir Ólympíuleikar 1968 og HM karla árið áður höfðu kveikt áhuga Mexíkóa á að skipuleggja stórmót til að nýta innviði. Leikir keppninnar drógu að sér áhorfendafjölda sem aldrei áður hafði sést í knattspyrnu kvenna, þannig fylgdust meira en 110 þúsund manns með úrslitaleiknum þar sem Danir unnu heimakonur 3:0. Það teljist aðsóknarmet á knattspyrnuleik kvenna enn í dag ef FIFA fengist til að viðurkenna leikinn.