Margrét prinsessa, greifynjan af Snowdon
Útlit
Margrét Rós prinsessa, greifynjan af Snowdon | |
---|---|
Fædd | Margaret Rose Windsor 21. ágúst 1930 Glamis kastala, Angus, Skotlandi |
Dáin | 9. febrúar 2002 (71 árs) Spítala Játvarðar 7. konungs, London, Englandi Hvílir í Kappellu heilags Georgs í Windsor kastala |
Dánarorsök | Dánarorsök: slag og eftirköst þess |
Störf | Systir drottningar |
Þekkt fyrir | Lífstíl sinn |
Titill | Yðar konunglega hátign |
Trú | Biskupakirkjan enska |
Maki | Antony Armstrong-Jones ljósmyndari og 1. jarl af Snowdon |
Börn | David Armstrong-Jones (f. 1961) 2. jarl af Snowdon Sarah Chatto (f. 1964) |
Foreldrar | Georg VI og Elísabet drottning (f. Bowes-Lyon) |
Margrét prinsessa, greifynjan af Snowdon (Margaret Rose) (21. ágúst 1930 — 9. febrúar 2002) var yngri dóttir Georgs VI og Elisabetar drottningar. Margrét prinsessa var ávallt umdeildur meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar vegna einkalífs hennar sem oftar en ekki lenti á forsíðum bresku blaðanna.
Fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Þann 6. maí 1960 giftist Margrét Antony Armstrong-Jones ljósmyndara, og fengu þau eftir brúðkaupið titilinn jarlinn og greifynjan af Snowdon. Þau eignuðust tvö börn:
- David Armstrong-Jones, Linley greifi (f. 1961), nú 2. jarl af Snowdon.
Hann hannar húsgögn undir nafninu David Linley - Lafði Sarah Armstrong-Jones (f. 1964), Sarah Chatto, eftir að hún gifti sig.
Mikið var fjallað um hjónaband þeirra en því var oft haldið fram, árin sem þau voru gift, að hjónaband þeirra stæði á brauðfótum. Þau skildu árið 1978.
Margét prinsessa lést 71 árs gömul, eftir að hafa fengið slag árið 2002.