1283
Útlit
(Endurbeint frá MCCLXXXIII)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1283 (MCCLXXXIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Erlendur sterki Ólafsson varð lögmaður norðan og vestan.
- Hrafn Oddsson kom til Íslands með konungsbréf um að allir þeir staðir, er ranglega væru teknir af leikmönnum og þeir og þeirra foreldrar hefðu á setið með réttri og löglegri hefð skyldu aftur hverfa undir forsjá leikmanna.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 3. október - Játvarður 1. Englandskonungur lét í fyrsta skipti beita nýrri tegund líflátsaðferðar þar sem þeir sem dæmdir höfðu verið sekir um landráð voru dregnir, hengdir og hlutaðir sundur (dregnir á aftökustaðinn, hengdir þar til þeir voru nær kafnaðir og síðan hálshöggnir og líkið höggvið í fjóra hluta). Fyrsta fórnarlamb þessarar aðferðar var Dafydd ap Gruffydd, prins af Wales.
- Mongólaveldið réðist á Kmeraveldið í Kambódíu.
- Borgin Kiel fékk inngöngu í Hansasambandið.
- Elsta skák- og leikjabók Evrópu, Libro de los juegos, samin á Spáni.
- Filippus 3. Frakkakonungur bannar gyðingum búsetu í smáþorpum og sveitum Frakklands.
Fædd
- Játvarður Balliol, Skotakonungur (d. 1360).
- Margrét Skotadrottning (d. 1290).
Dáin
- 9. apríl - Margrét, drottning Noregs, fyrri kona Eiríks prestahatara (f. 1261).
- 3. október - Dafydd ap Gruffydd, síðasti þjóðhöfðingi Wales (tekinn af lífi).