Lækjasteinbrjótur
Útlit
Lækjasteinbrjótur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lækjasteinbrjótur (S. rivularis) í Upernavik í Grænlandi
Nærmynd af blómi
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Saxifraga rivularis L. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Saxifraga debilis |
Lækjasteinbrjótur (fræðiheiti: Saxifraga rivularis) er blómplanta sem finnst á norðurslóðum norðurhvels og háfjöllum. Á Íslandi finnst hann um land allt.
Lækjasteinbrjótur vex rökum jarðvegi. Er lágvaxin planta (3–12 sm) með gljáandi blöðum sem skiftast oft í 3 hluta eða eru sepótt og hvítum blómum sem deilast í 5 blöð. Hann blómgast í júní - júlí.[1]
Lækjasteinbrjótur getur verið millihýsill fyrir víðiryðsvepp (Melampsora epitea).[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Lækjasteinbrjótur Flóra Íslands. Skoðað 30. mars, 2023
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. bls 121, ISSN 1027-832X
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Lækjasteinbrjótur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Saxifraga rivularis.