Fara í innihald

Krafla

Hnit: 65°44′0″N 16°47′0″V / 65.73333°N 16.78333°V / 65.73333; -16.78333
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

65°44′0″N 16°47′0″V / 65.73333°N 16.78333°V / 65.73333; -16.78333

Krafla
Kröflusvæðið
Kröflusvæðið
Hæð 818 metrar yfir sjávarmáli
Staðsetning Suður-Þingeyjarsýsla
Fjallgarður Enginn
Krafla eldstöðvakerfi merkt rautt á kortið og megineldstöðvar merktar með grænum þríhyrning. Gossprungur einning tilgreindar.

Krafla er megineldstöð nálægt Mývatni. Hæsti tindur er 818 m. Í henni er sigketill eða askja sem er 10 km í þvermál. Á Kröflusvæðinu er háhitasvæði með leirhverum og gufuhverum, til dæmis við Námafjall. Þar eru um 100 km langar sprungur sem gliðna í eldsumbrotum. Eldgos verða oft á slíkum svæðum.

Fyrir 10 þúsund árum lá ísaldarjökull yfir svæðinu og gat því hraunið ekki runnið burt heldur hlóðust upp móbergshryggir eins og Skógamannafjöll. Árin 1724-29 geisuðu Mývatnseldar. Síðasta gos í Kröflu var 1984 en þá lauk Kröflueldum sem var goshrina sem staðið hafði frá 1975. Frá árinu 1975 hefur jarðhiti Kröflu verið notaður í 60 MW jarðvarmavirkjun, Kröflustöð.

  • „Landsvirkjun: Jarðfræði Kröflusvæðisins“. Sótt 19. júlí 2010.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.