Kóngablásól
Útlit
Kóngablásól | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Meconopsis regia G. Taylor[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Papaver regium (G. Taylor) Christenh. & Byng |
Kóngablásól (fræðiheiti: Meconopsis regia[2]) er blásól ættuð frá Nepal.[3] Hún blómstrar stórum hvítum til rjómagulum blómum í 1-1,5m háum gisnum skúf uppúr hvirfingu heilla smátenntra blaða. Hún vex í nokkur ár og deyr svo eftir blómgun (eins og tvíærar jurtir, "monocarpic").
Kóngablásól myndar auðveldlega frjóa blendinga með öðrum blásólum og er horfin úr ræktun sem hrein tegund.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ G. Taylor (1929) , In: Journ. Bot., 67: 259
- ↑ „Meconopsis regia G. Taylor | COL“. www.catalogueoflife.org. Sótt 23. janúar 2024.
- ↑ „Meconopsis regia G. Taylor | Plants of the World Online | Kew Science“. Plants of the World Online (enska). Sótt 23. janúar 2024.
- ↑ Christopher Grey-Wilson (2014). The genus Meconopsis Blue poppies and their relatives. Kew Publishing Royal botanic gardens, Kew. bls. 59. ISBN 978-1-84246-369-7.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Meconopsis regia.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kóngablásól.