John Milton
Útlit
John Milton (9. desember 1608 – 8. nóvember 1674) var enskt skáld og rithöfundur. Hann er þekktastur fyrir kvæði sitt Paradísarmissi. Milton var lengi hampað sem höfuðskáldi Englendinga en vinsældir hans dvínuðu nokkuð um miðja 20. öld. Milton hafði mikil áhrif á John Keats, Alexander Pope, William Wordsworth og Percy Shelley svo fáeinir séu nefndir.