Jaðar (mengjafræði)
Útlit
(Endurbeint frá Jaðarpunktur)
Jaðar í mengjafræði á við mismengi lokunar og iðurs tiltekins mengis, en stök þess mengis kallast jaðarpunktar og þeir geta verið teljalegir eða óteljalegir.
Skilgreining
[breyta | breyta frumkóða]Punktur p kallast jaðarpunktur í menginu S ef og aðeins ef sérhver lokuð kúla um p á sér stök bæði úr S og úr fyllimengi þess, Sc. Fyllimengið hefur sama jaðar og S sjálft.
Mengi allra jaðarpunkta mengisins kallast jaðar þess, og er það gjarnan táknað . Aðgát skal þó höfð, þar sem að táknið er einnig notað til þess að tákna hlutafleiður.