Hjálmar (hljómsveit)
Hjálmar | |
---|---|
Uppruni | Keflavík |
Ár | 2004-2006 og 2007-núverandi |
Útgáfufyrirtæki | Sena |
Meðlimir | Þorsteinn Einarsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Sigurður Halldór Guðmundsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, Helgi Svavar Helgason |
Fyrri meðlimir | Kristinn Snær Agnarsson, Petter Winnberg, Nils Olof Törnqvist, Mikael Svensson |
Hjálmar er hljómsveit stofnuð árið 2004 í Keflavík og spilar reggítónlist með íslensku yfirbragði. Hún hefur sent frá sér níu breiðskífur. Þegar unnið var að fyrstu breiðskífunni var sveitin skipuð þeim Þorsteini Einarssyni, Guðmundi Kristni Jónssyni, Kristni Snæ Agnarssyni, Petter Winnberg og Sigurði Halldóri Guðmundssyni. Þegar kom að því að taka upp aðra breiðskífu sveitarinnar höfðu orðið nokkrar mannabreytingar. Svíarnir Nils Olof Törnqvist og Mikael Svensson höfðu gengið til liðs við sveitina en Kristinn Snær Agnarsson hætti.
Í ágúst 2006 var tilkynnt að hljómsveitin hefði hætt samstarfi.[1] Í mars 2007 komu Hjálmar þó fram á nýjan leik [2] og hafa haldið tónleika reglulega síðan.
Þeirra fyrsta plata, Hljóðlega af stað var tekin upp í Geimsteini, en hún vann til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2004 sem besta rokkplata ársins. Ári síðar, 2005 léku þeir á færeysku tónlistarhátíðinni G! Festival.
Önnur plata sveitarinnar, Hjálmar, var hljóðrituð í félagsheimilinu á Flúðum dagana 15. til 19. ágúst 2005.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]Núverandi
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn Einarsson - Gítar og söngur
- Sigurður Halldór Guðmundsson - Hljómborð og söngur
- Guðmundur Kristinn Jónsson - Gítar
- Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson (2007- ) - Bassi
- Helgi Svavar Helgason (2007- ) - Trommur
Fyrrverandi
[breyta | breyta frumkóða]- Kristinn Snær Agnarsson (2004-2005)
- Micke "PB" Svensson (2005-2007)
- Nils Olof Törnqvist (2005-2007)
- Petter Winnberg (2004-?)
Hljóðritaskrá
[breyta | breyta frumkóða]Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Hljóðlega af stað (2004)
- Hjálmar (2005)
- Ferðasót (2007)
- IV (2009)
- Keflavík Kingston (2010)
- Órar (2011)
- Dub og Doom (2013) ásamt Jimi Tenor
- Allt er eitt (2019)
- Yfir hafið (2020)
Safnplötur
[breyta | breyta frumkóða]- Skýjaborgin (2014)
Stökur
[breyta | breyta frumkóða]- Hlauptu hratt (2015)
- Undir fót (2015)
- Er hann birtist (2016) ásamt Mr. Sillu
- Allt er eitt (2016)
- Græðgin (2017)
- Glugginn (2017)
- Aðeins eitt kyn (2018)
- Hættur að anda (2018)
- Fyrir þig (2018)
- Hvað viltu gera? (2019)
- Segðu já (2020)
- Grillið inn (2021) ásamt Prins Póló
- Kona (2021) ásamt Kára Stefánssyni
- Upp á rönd (2022) ásamt GDRN
- Grillið inn (2023) ásamt Prins Póló og Putumayo
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Mbl.is - Hjálmar hættir“. Sótt 28. ágúst 2006.
- ↑ „Mbl.is - Upprisa Hjálmanna“. Sótt 3. ágúst 2008.