Haraldur Sigurðsson
Haraldur Sigurðsson (fæddur 31. maí 1939) er íslenskur jarð- og jarðefnafræðingur.
Nám, störf og rannsóknir
[breyta | breyta frumkóða]Haraldur nam jarðfræði við Háskólann í Belfast og lauk doktorsprófi við Háskólann í Durham 1970. Mestallan sinn starfsaldur starfaði hann erlendis, lengst af sem prófessor við Háskólann í Rhode Island í Bandaríkjunum. Haraldur er í fremstu röð eldfjallafræðinga. Hann hefur birt, ýmist einn eða í samstarfi við aðra, mikilvægar greinar um niðurstöður rannsókna á stórum eldgosum, m.a. um gosið í Santorini (Minoan gosið) um 1600 fyrir Krist, Öskju 1875, Vesúvíusi 79 og eyðileggingu borganna Pompei og Herculaneum. Hann hefur einnig rannsakað og ritað um gosið í Tambora 1815, Krakatá 1883, Mount St. Helens 1980, El Chichon 1982, Nevado del Ruiz 1985, stórgos í Kötlu í lok síðasta jökulskeiðs (myndun Vedde gjóskunnar) og myndun Bishop túffsins í Long Valley öskjunni í Kaliforníu fyrir 760.000 árum. Hér á landi hefur hann komið að rannsóknum á gosinu í Lakagígum 1783-84 og Eyjafjallagosunum 2010, svo og að bergfræði gosbelta og úthafshryggja. Rannsóknir Haraldar á ummerkjum um árekstur loftsteina við jörð fyrir um 65 milljónum ára, á mörkum krítar og tertíer tímabilanna, vöktu mikla athygli en einnig hefur hann rannsakað tengsl loftslags og eldvirkni, einkum áhrif brennisteins sem berst upp í andrúmsloftið í eldgosum.
Eldfjallasafnið
[breyta | breyta frumkóða]Þegar Haraldur lét af störfum sem prófessor við Rhode Island flutti hann til Stykkishólms. Þar setti hann á stofn eldfjallasafn sem opnað var vorið 2009. Safnið er einstætt í veröldinni því það sýnir fyrst og fremst listaverk víða að úr heiminum sem Haraldur hefur safnað og tengjast eldgosum og eldvirkni.
Heiðursverðlaun
[breyta | breyta frumkóða]Haraldur hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2005 fyrir störf sín í þágu vísindarannsókna.
Haraldi var veitt heiðursdoktorsgráða frá Háskóla Íslands 22. jan. 2011.
Haraldur var aðalritstjóri bókarinnar Encyclopedia of Volcanoes en hún er grundvallarrit í eldfjallafræði. Fyrir hana hefur hann hlotið margar viðurkenningar.