Fara í innihald

Handknattleiksárið 1956-57

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Handknattleiksárið 1956-57 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1956 og lauk sumarið 1957. FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Þróttarar í kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.

Karlaflokkur

[breyta | breyta frumkóða]

FH-ingar urðu Íslandsmeistarar á fullu húsi stiga. Keppt var í níu liða deild með einfaldri umferð.

Félag Stig
FH 16
KR 14
ÍR 12
Fram 8
Ármann 8
Valur 5
Afturelding 4
Þróttur 2
Víkingur 2

Kvennaflokkur

[breyta | breyta frumkóða]

Þróttarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna á markatölu í fyrsta og eina sinn. Leikin var einföld umferð í fimm liða deild.

Félag Stig
Þróttur 7
Fram 7
Ármann 4
KR 2
FH 0

Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.